
Ársfundur Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði verður haldinn í hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, stofu C-103, 1. hæð, Eirbergi, Eiríksgötu 34, fimmtudaginn 4. mars 2010 kl. 14:00.
Fundarstjóri er Rúnar Vilhjálmsson, prófessor
Dagskrá:
14:00 Ársskýrsla stjórnar 2009 Sóley S. Bender , prófessor við hjúkrunarfræðideild HÍ og formaður stjórnar Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði
14:15 Þróun háskólaheilsugæslu? Jóhann Á. Sigurðsson, prófessor og yfirlæknir Þróunarstofu heilsugæslunnar
14:30 Efling heilbrigðis- og sjálfsumönnunar hjá fólki með langvinna lungnateppu og fjölskyldum þeirra: Rannsóknasamstarf milli fræðigreina og stofnana Helga Jónsdóttir, prófessor við hjúkrunarfræðideild HÍ og forstöðumaður fræðasviðs um hjúkrun langveikra fullorðinna
14:45 Geðvernd: Staða og þróun í ljósmæðra- og hjúkrunarþjónustu í mæðra-, ungbarna- og smábarnavernd Marga Thome, prófessor við hjúkrunarfræðideild HÍ og forstöðumaður fræðasviðs um geðvernd
15:00 Pallborðsumræður. Flytjendur erinda taka þátt í pallborðsumræðum ásamt Geir Gunnlaugssyni, landlækni, Margréti Björnsdóttur, forstjóra Lýðheilsustöðvar og Brynju Örlygsdóttur, lektor við hjúkrunarfræðideild HÍ
Boðið verður upp á léttar veitingar í dagskrárlok
Allir velkomnir
Stjórn Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði
