Ari Páll Kristinsson: Hvernig er hægt að lýsa málsniðum?

Hvenær hefst þessi viðburður: 
11. nóvember 2009 - 16:15 to 17:00

Í fyrirlestrinum segir Ari Páll frá nýlegu doktorsverkefni sínu. Verkefnið fólst í rannsókn sem stefndi að því að leggja drög að lýsingu á málsniðum tveggja textategunda, útvarpsfrétta og dægurmálaefnis í útvarpi. Leitast var við að afmarka málsniðshugtakið og beita því í umfjöllun um hið íslenska efni, ásamt því að fjalla um breytilega málnotkun eftir aðstæðum í fræðilegu samhengi kenninga í félagsmálvísindum.

Ari Páll Kristinsson lauk doktorsprófi í íslenskri málfræði frá Háskóla Íslands í maí síðastliðnum. Hann gegnir nú stöðu rannsóknardósents og stofustjóra málræktarsviðs hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

deila á facebook