
Þjóðmálastofnun og EDDA - öndvegissetur standa fyrir fyrirlestraröðinni „Eilífðarvélin" í tengslum við útgáfu bókarinnar Eilífðarvélin. Uppgjör við frjálshyggjuna.
Föstudaginn 24. september flytur Stefán Ólafsson erindið „Árangur frjálshyggjunnar - Samanburður lífskjara í frjálshyggjuríkjum og velferðarríkjum." Stefán spyr hvort þau lönd sem fylgja frjálshyggjuleið nái betri lífskjörum fyrir almenning nú á dögum en önnur lönd, einkum þau sem fela opinbera velferðarríkinu stærra hlutverk. Skoðaðir verða fjölmargir mælikvarðar á gæði lífskjara og tækifæra. Sjónum verður sérstaklega beint að Bandaríkjunum, sem hafa fylgt frjálshyggjuleið í ríkari mæli en flest vestræn ríki.
Stefán Ólafsson er prófessor í Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands og stjórnarformaður Tryggingastofnunar ríkisins. Hann lauk doktorsprófi í þjóðfélagsfræði frá Oxfordháskóla. Stefán hefur skrifað bækur og greinar og flutt fjölda erinda um lífskjör, velferðarkerfi, ójöfnuð, vinnumarkaði og samfélagsþróun, svo fátt eitt sé nefnt.
Fyrirlesturinn er á Háskólatorgi, stofu 104, og hefst klukkan 12.30.
Upplýsingar um fyrirlestraröðina má finna á vefsíðu Eilífðarvélarinnar: http://www.ts.hi.is/eilifdarvelin/
