
Alþjóðadagur í Háskóla Íslands verður haldinn 22. október á Háskólatorgi.
Á deginum verða kynntir möguleikar á námi erlendis, bæði skiptinámi og öðru námi. Háskóli Íslands á í samstarfi við hundruð skóla erlendis og fjölmargir stúdentar skólans fara til náms erlendis í lengri eða skemmri tíma. Nám við skólann opnar því ótal dyr út um alla veröld og markmið dagsins er að kynna þessa möguleika.
Dagurinn er samstarf franska sendiráðsins á Íslandi, Háskóla Ísland sog Stúdentaráðs. Frakkland fer með forsæti Evrópusambandins um þessar mundir og eitt af aðaláherslumálum þeirra er að stuðla að hreyfanleika stúdenta (e. student mobility) í Evrópu. Olivier Mauvisseau, sendiherra Frakklands á Íslandi, mun setja Alþjóðadaginn kl. 14:45 á Háskólatorgi.
Á torginu verða kynningarborð frá fjölmörgum löndum, auk sambands íslenskra stúdenta erlendis (SÍNE), Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands, Upplýsingastofu um nám erlendis og Lánasjóði íslenskra námsmanna, svo fátt eitt sé nefnt. Í stofu 101 á Háskólatorgi verða fyrirlestrar, kynningar og reynslusögur nemenda.
Tveir heppnir fá flug til Parísar og Barcelona. Boðið verður upp á veitingar og kvikmyndin L'auberge espanol verður sýnd kl. 18:30.
Alþjóðadagurinn er opinn öllum og háskólanemar og framhaldsskólanemar eru sérstaklega boðnir velkomnir.
Dagskrá:
14:45-14:55 - Háskólatorg 2. hæð
Opnun Alþjóðadags, Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri markaðs- og samskiptasviðs HÍ og Hr. Olivier Mauvisseau, sendiherra Frakklands á Íslandi.
Opening of the International Day, Jón Örn Guðbjartsson, head of Division of Marketing and Communications and Mr. Olivier Mauvisseau, French Ambassador in Iceland.
15:00 - 18:00 - Háskólatorg 2. hæð
Kynningarbásar frá erlendum löndum, Sambandi íslenskra nema erlendis, LÍN, SHÍ og Alþjóðaskrifstofu.
15:00-15:15 - HT 101
Skiptinám í Evrópu, Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, verkefnisstjóri á Alþjóðaskrifstofu .
Studying in Europe – Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, Project manager, International Office.
15:20-15:40 - HT101
Nám í Frakklandi, Gérard Lemarquis, frönskuprófessor ásamt Kötlu Ísaksdóttur
Studying in France, Gérard Lemarquis, professor in French, and an Icelandic student, Katla Ísaksdóttir.
15:45-16:05 - HT101
Nám í Noregi, Eirik Lien frá Háskólanum í Þrándheimi og Dórothea Margrét Einarsdóttir skiptistúdent í NTNU.
Studying in Norway, Eirik Lien from NTNU in Trondheim and Dórothea Margrét Einarsdóttir exchange student in NTNU.
16:10-16:25 - HT101
Nám í Póllandi, Agnieszka Pietrzak, FDES skrifstofan í Póllandi.
Studying in Poland, Agnieszka Pietrzak, FDES in Poland.
16:30-16:50 - HT101
Skiptinám utan Evrópu, Áslaug Jónsdóttir, Alþjóðaskrifstofu og Arna Frímannsdóttir, skiptistúdent í Colorado.
Student exchange outside Europe, Áslaug Jónsdóttir, International Office and Arna Frímannsdóttir, exchange student in Colorado.
16:55-17:10 - HT101
Nám í Bandaríkjunum, Lára Jónsdóttir, forstöðumaður Fulbright stofnunarinnar .
Studying in the United States, Lára Jónsdóttir, director of the Fulbright Commission.
17:30-18:15 - Háskólatorg 2. hæð
Veitingar í boði franska sendiráðsins
Refreshments offered by the French embassy in Iceland
18:30-20:00 - HT102
Kvikmyndin L’auberge espagnol sýnd í boði Franska sendiráðsins
The movie L’auberge espagnol
