Ákæruvaldið í Noregi - Skipulag, verkefni og samstarf við stjórnvöld

Hvenær hefst þessi viðburður: 
27. nóvember 2009 - 12:00 to 13:15

Tor-Aksel Busch var skipaður ríkissaksóknari í Noregi 1987. Hann er staddur á Íslandi vegna fundar ríkissaksóknara og Ákærendafélagsins.

Í erindi sínu fjallar Tor-Aksel um norska löggjöf um ákæruvaldið og starfið almennt, einkum samskipti og samvinnu við stjórnvöld. Hann mun segja frá starfsemi ÖKOKRIM, en sú stofnun hefur verið í forsvari fyrir rannsókn og saksókn á alvarlegri efnahagslegri brotastarfsemi í tvo áratugi.

Þá mun hann m.a. svara þeirri spurningu hvort og hvernig unnt sé að halda uppi sjálfstæði embættisins á óvenjulegum tímum þegar mikill þrýstingur er frá stjórnmálamönnum og stjórnvöldum.

Fundarstjóri er Stefán Már Stefánsson prófessor við lagadeild HÍ.

Erindið verður flutt á norsku - Allir velkomnir

deila á facebook