
Föstudaginn 10. febrúar flytur Guðmundur Jónsson erindi á málstofu Hagfræðideildar undir yfirskriftinni: „Áhrif EES-aðildar á utanríkisverslun Íslands“.
Aðildin að Evrópska efnahagssvæðinu 1994 fól í sér nána samlögun Íslands að efnahagslífi Evrópulanda og gagnkvæman og óheftan aðgang einstaklinga og fyrirtækja að innri markaði Evrópusambandsins. Sú staðreynd að Ísland var orðið hluti af sameiginlegum markaði ESB hlaut að hafa víðtæk áhrif á íslenskt samfélag og efnahagslíf enda ESB mikilvægasti viðskiptaaðili Íslands. Mikið hefur verið rætt og ritað um efnahagsleg áhrif EES-samningsins t.d. á fjármálamarkað, efnahagslegan stöðugleika og frjálsræði í viðskiptum, en ekki hefur enn verið gerð rækileg úttekt á áhrifum hans á utanríkisverslun.
Í erindinu er leitast við að greina þau áhrif sem EES-samningurinn hafði á utanríkisverslun Íslands. Sjónum er einkum beint að breytingum á viðskiptaumhverfinu og viðbrögðum fyrirtækja við þeim, greiðari markaðsaðgangi íslenskra fyrirtækja í Evrópu og breytingum á vöruviðskiptum í kjölfar EES-aðildar.
Guðmundur Jónsson er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hann vinnur nú að ritun sögu íslenskrar utanríkisverslunar á 20. öld.
