Ahmadiyyamúslimar á Íslandi

Hvenær hefst þessi viðburður: 
9. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Bjarni Randver Sigurvinsson guðfræðingur og Pétur Björgvin Þorsteinsson Evrópufræðingur (MA) halda fyrirlestur um Ahmadiyyamúslima, islamska vakningarhreyfingu sem m.a. er að finna á Íslandi, á málstofu á vegum Trúarbragðafræðistofu Hugvísindasviðs HÍ mánudaginn 9. nóvember kl. 12:00 í stofu A229 í Aðalbyggingu HÍ.

Ahmadiyyamúslimar eiga rætur að rekja til Indlands undir lok 19. aldar og segjast boða hin sönnu trúarbrögð islams sem múslimar hafi fjarlægst um of á liðnum öldum. Þeir vilja sameina alla múslima undir forystu siðbótarleiðtogans Mirza Ghulam Ahmad (1835-1908) sem hafi verið hinn fyrirheitni Messías og Mahdi sem vænst hafi verið. Boðunarstarf þeirra á Íslandi hófst fyrir rúmum áratug.

Allir velkomnir.

deila á facebook