Afvopnunarmál: Norður-Kórea

Hvenær hefst þessi viðburður: 
7. febrúar 2012 - 12:25 to 13:15

Hádegisfundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og NEXUS um afvopnunarmál Norður-Kóreu, þriðjudaginn 7. febrúar frá kl. 12:25 til 13:15 í stofu 104 á Háskólatorgi. 

 Við fráfall Kim Jong-il hafa vaknað margar spurningar varðandi framtíð Norður-Kóreu, þ.á.m. vangaveltur um framtíð eldflauga- og kjarnorkuvopnaáætlana landsins. Í erindinu veltir Vera því fyrir sér hvort nú sé tækifæri fyrir alþjóðasamfélagið til að byggja upp traust og semja við stjórnvöld í Pyongyang um kjarnorkuafvopnun.

Vera Knútsdóttir er með B.A. próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og M.A. gráðu í alþjóðaöryggisfræðum frá Georgetown Háskóla þar sem hún lagði áherslu á afvopnunarmál og óhefðbundin vopn. Í náminu skoðaði hún öryggis- og varnarmál í Norðaustur Asíu og þá sérstaklega eldflauga- og kjarnorkuvopnaáætlun Norður Kóreu. Vera hefur lengi haft áhuga á öryggis- og varnarmálum og fengið birtar greinar þess efnis á vef Guardian og Defense Media Network. 

Fundarstjóri: Erlingur Erlingsson, sendiráðsritari í utanríkisráðuneytinu

deila á facebook