Að missa eiginkonu úr krabbameini - áhrifaþættir kvíða og þunglyndis hjá ekklum 4 - 5 árum eftir missi

Hvenær hefst þessi viðburður: 
19. nóvember 2009 - 12:00 to 13:00

Málstofa sálfræðideildar 19. nóvember kl. 12:00 - 13:00 í stofu 3 í Háskólabíó

Að missa eiginkonu úr krabbameini - áhrifaþættir kvíða og þunglyndis hjá ekklum 4-5 árum eftir missi

 
Fjórða málstofa haustmisseris verður haldin fimmtudaginn 19. nóvember næstkomandi. Arna Hauksdóttir mun kynna doktorsverkefni sitt sem hafði það markmið að greina breytanlega áhættuþætti fyrir langvinnan sálrænan heilsubrest ekkla.

Arna sem lauk BA prófi í sálfræði árið 1996 varði doktorsverkefni sitt 13. nóvember síðastliðinn við Karolinska Institutet.

Arna starfaði á  árunum 1996 - 2000 við Námsmatsstofun sem þá hét Rannsóknarstofa uppeldis- og menntamála. Á árunum 2000 - 2002 starfaði hún hjá IMG Gallup sem verkefnastjóri í viðhorfsrannsóknum.  Arna starfaði svo sem ráðgjafi menntamála í Menntamálaráðuneytinu árin 2008 - 2009.

Málstofan er öllum opin

 

 

 

 

 
deila á facebook