
Ábyrgð á internetinu - Responsibility for Expression and Information on the Internet
Þann 19. nóvember næstkomandi, kl. 13.00-16.45, verður haldin ráðstefna í Þjóðminjasafninu, þar sem fjallað verður um ábyrgð á Internetinu.
Fyrirlesarar eru innlendir og erlendir, þ.á m. helstu sérfræðingar á þessu sviði frá Finnlandi, Noregi, Hollandi og Bretlandi.
Þórunn J. Hafstein, settur ráðuneytisstjóri í dómsmála- og mannréttindaráðuneyti, flytur opnunarávarp. Komið verður inn á ýmsa þætti er varða netglæpi, lögsögu og varnarþing. Meðal annars verður rætt um barnaklám, kynþáttahatur, hvar aðilar verði dregnir til ábyrgðar og skyldu ríkja til að vernda friðhelgi einkalífs.
Ráðstefnan, sem verður á ensku, er haldin í samstarfi dómsmála- og mannréttindaráðuneytis, Mannréttindastofnunar og Lagadeildar Háskóla Íslands. Norræna ráðherranefndin veitir styrk vegna ráðstefnunnar í tilefni af formennsku Íslands árið 2009.
Upplýsingar um dagskrá og fyrirlesara: http://hi.is/is/felagsvisindasvid_deildir/lagadeild/adal/conference
Ráðstefnan, sem er á ensku, er öllum opin og aðgangur ókeypis.
