
Á krossgötum
Kynningardagur hjúkrunarfræðinema í Háskóla Íslands
Starfsvettvangur hjúkrunarfræðinga
Föstudaginn 21. janúar kl. 11:30 -14
Hjúkrunarfræðideild Eirbergi, 1. og 2. hæð
Hjúkrunarfræðinemar á lokaári bjóða til kynningar á hinum ýmsum störfum hjúkrunarfræðinga.
Nýjar og hefðbundnar hliðar á starfsvettvangi hjúkrunarfræðinga verða kynntar:
|
|
|
Kynningin er liður í námskeiðinu í hjúkrun sem starfs- og fræðigrein þar sem hópar nemenda kynna starfstækifæri í hjúkrun bæði hér á landi og erlendis.
Framhaldsnám í hjúkrun og ljósmóðurfræðum verður kynnt og fulltrúar heilbrigðisstofnana og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga kynna störf sín.
Tryggur samstarfsmaður hjúkrunarfræðinema, hermisjúklingurinn Hermann, verður á staðnum ásamt umsjónarmanni sínum sem sýna hvernig hjúkrunarfræðingar bregðast við ýmsum kvillum Hermanns.
Glæsileg kaffisala nemenda verður frá kl. 11:30 til 13:00 til styrktar útskriftarferðinni í vor.
