Á degi Híerónýmusar: Málþing um sjónvarps- og kvikmyndaþýðingar

Hvenær hefst þessi viðburður: 
30. september 2010 - 15:00

Á DEGI HÍERÓNÝMUSAR

– málþing í tilefni af alþjóðadegi þýðenda
– haldið á Þjóðminjasafni Íslands fimmtudaginn 30. september

Það hefur ekki farið mikið fyrir alþjóðadegi þýðenda undanfarin ár en nú
hyggst Bandalag þýðenda og túlka halda upp á hann með því að efna til
málþings. Dagurinn er kenndur við heilagan Híerónýmus sem var
frumkvöðull í Biblíuþýðingum. Þess má geta að Bandalag þýðenda og túlka
var einmitt stofnað á alþjóðadegi þýðenda 30. september 2004.

Í tilefni dagsins hyggst Bandalagið heiðra tvo þýðendur fyrir
brautryðjendastörf að sjónvarps- og kvikmyndaþýðingum og í leiðinni verða
flutt þrjú stutt erindi um þýðingar af þessu tagi, auk ávarps til að
minnast dagsins.

Dagskrá:
15.00 Ávarp formanns
15.05 Ávarp Gauta Kristmannssonar í tilefni af degi þýðenda
15.10 Gísli Ásgeirsson: Glæpamaður í tjaldi
15.30 Guðfinna Rúnarsdóttir: Með öðrum orðum
16.00 Haraldur Jóhannsson: Fangi rammans
16.20 Heiðrun tveggja þýðenda

Málþingið fer fram á Þjóðminjasafninu milli 15 og 17 og eru allir
velkomnir.

deila á facebook