5. ráðstefna Efnafræðifélags Íslands

Hvenær hefst þessi viðburður: 
14. nóvember 2009 - 10:00 to 17:00

5. ráðstefna Efnafræðifélags Íslands verður haldin 14. nóvember á Hótel Loftleiðum.

Efna- og lífefnafræðingar eru hvattir til þess að nýta þetta tækifæri til að kynna rannsóknir sínar og nemenda sinna með veggspjöldum.

Þema ráðstefnunar verður Efnafræði og nýsköpun.

Skráningarfrestur á ráðstefnuna er til 1. nóvember á netfangið efnis09@gmail.com.

Ágrip erinda og veggspjalda skal senda á sama netfang.

Ráðstefnunni verður skipt upp í þrjár lotur, Líf- og Heilsutækni; Efnafræði og efnatækni; og Græn efnafræði (sjá dagskrá hér að neðan). Ágrip skulu vera á bæði íslensku og ensku og rúmast á einni A4 síðu.

Sjá nánar á vef Efnafræðifélags Íslands www.efn.is

deila á facebook