26. Rask-ráðstefna Íslenska málfræðifélagsins og Málvísindastofnunar Háskóla Íslands

28/01/2012 - 10:00
28/01/2012 - 16:00
Fyrirlestrasalur Þjóðminjasafns Íslands

Hin árlega Rask-ráðstefna Íslenska málfræðifélagsins og Málvísindastofnunar Háskóla Íslands verður haldin í 26. skipti laugardaginn 28. janúar 2012. Hún fer fram í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins og hefst kl. 10:00. Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki um mál og málvísindi.

Ráðstefnan er kennd við danska málvísindamanninn Rasmus Kristján Rask (1787-1832). Í ár verða haldnir níu fyrirlestrar um margvísleg efni sem snerta íslenskt mál og málnotkun og um íslenskt táknmál. Dagskrá ráðstefnunnar og útdrætti úr erindum má nálgast hér.

Í síðustu málstofunni, sem m.a. fjallar um íslenskt táknmál (kl. 14:30-16:00), verður boðið upp á táknmálstúlkun.

Nánari upplýsingar eru á vef málfræðifélagsins, málfræði.is.

deila á facebook