Skip to main content

18. ráðstefnan um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum

Hvenær 
3. janúar 2017 8:00 til 4. janúar 2017 18:00
Hvar 

Háskólatorg

Nánar 
Aðgangur ókeypis

18. ráðstefna Heilbrigðisvísindasviðs um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum fer fram 3. og 4. janúar 2017 Háskólatorgi. Ráðstefnunni er ætlað að miðla því sem er efst á baugi í líf- og heilbrigðisvísindum hverju sinni og stuðla að auknu þverfræðilegu samstarfi.

Tvær nýjungar verða kynntar á 18. ráðstefnunni. Boðið verður upp á málstofur sem fara að öllu leyti fram á ensku. Þetta er gert til þess að koma til móts við vaxandi fjölda enskumælandi nemenda og starfsfólks við Háskóla Íslands. Þá verða einnig tvær sérstakar gestamálstofur á dagskrá þar sem skipulagning og val á efni er í samstarfi við utanaðkomandi sérfræðinga. Önnur málstofan er á vegum Sýklafræðideildar Landspítala og Barnaspítala Hringsins og nefnist: Árangur pneumókokkabólusetningar á Íslandi. Hin er á vegum Félags lýðheilsufræðinga, Faralds- og tölfræðifélagsins og Matvæla- og næringarfræðifélags Íslands og nefnist: Sykurneysla Íslendinga - Lýðheilsuógn?   

Efnt verður til opinna fyrirlestra fyrir almenning þar sem fjallað verður á aðgengilegan hátt um málefni úr líf- og heilbrigðisvísindum sem hafa verið í sviðsljósinu undanfarið. Annars vegar verður fjallað um stofnfrumur. Miklar vonir eru bundnar við nýtingu stofnfruma í lækningaskyni  en hvað eru stofnfrumur, hvernig virka þær í líkamanum og hvernig má nota eiginleika þeirra í meðferðar- og rannsóknarskyni? Hins vegar verður fjallað um hamingju og sjálfsmynd í neyslusamfélagi nútímans. Hverjar eru sálfræðilegar afleiðingar hugmyndafræði neyslusamfélaga og hver eru tengsl efnishyggju við hamingju, líkamsmynd og skuldasöfnun?  

Tveir spennandi gestafyrirlesarar munu einnig taka til máls á ráðstefnunni þar sem þjóðarátak gegn mergæxlum og misnotkun á marktæknihugtakinu í rannsóknum verða til umfjöllunar.  

Ágrip ráðstefnunnar verða birt í fylgiriti Læknablaðsins sem dreift er á ráðstefnunni og gert aðgengilegt á heimasíðu Háskóla Íslands.

Allir eru velkomnir á ráðstefnuna og aðgangur er ókeypis. 

Takið dagana frá og fjölmennið!  

Smellið hér til að skrá þátttöku í ráðstefnunni.

Skoða dagskrá.