Um Raunvísindadeild



Í raunvísindadeild er boðið upp á grunnnám til BS-prófs, meistaranám og doktorsnám í eðlisfræði, efnafræði, lífefnafræði og stærðfræði. Nú stunda tæplega 300 nemendur nám við deildina.

Við deildina starfa um 45 vel menntaðir og þjálfaðir kennarar sem um áraraðir hafa verið í farabroddi í rannsóknum á þeim fræðasviðum sem undir hana heyra. Mikilvægur þáttur í starfssemi deildarinnar er þjónustukennsla fyrir aðrar deildir HÍ. Kennarar deildarinnar eru langflestir með rannsóknaðstöðu við Raunvísindastofnun Háskóla Íslands.

Stoðþjónusta við kennara og nemendur deildarinnar er veitt á skrifstofu fræðasviðsins í Verkfræðahúsi 2 (VR-II) að Hjarðarhaga 2-6. Skrifstofan er opin virka daga kl. 10:00-16:00

Raunvísindadeild Háskóla Íslands
Hjarðarhaga 2-6
107 Reykjavík
Sími: 525 4700

deila á facebook