Afburðanemar í eðlis- og efnafræði verðlaunaðir

Sex nemendur sem hafa útskrifast með ágætiseinkunn úr BS námi við Raunvísindadeild Háskóla Íslands hlutu í gær verðlaun úr Verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar. Verðlaunaféð nemur 750 þúsund krónum fyrir hvern verðlaunahafa og er með veglegustu verðlaunum sem háskólanemum hérlendis eru veitt.

Í hópnum í gær voru fimm konur, sem þykir merkilegt fyrir þær sakir að karlar hafa hingað til verið í meirihluta í eðlisfræði- og efnafræðinámi við HÍ.