Háskóli Íslands brautskráir nemendur þrisvar á ári, í febrúar, júní og október. Nemendur þurfa að vera skráðir í brautskráningu og staðfesta beiðni um brautskráningu til deildar með því að fylla út neðangreint form.

Leiðbeiningar til útfyllingar:

  • Nafn: Á öllum pappírum sem viðkoma brautskráningu er fullt nafn viðkomandi nemanda notað eins og það er skráð í þjóðskrá
  • Sími: Við úrvinnslu fyrir brautskráningu getur verið nauðsynlegt að ná sambandi við nemanda símleiðis. Það símanúmer sem nemandi gefur upp hér er ekki birt öðrum en þeim sem vinna að brautskráningu hverju sinni.
  • Netfang utan HÍ: Félags- og mannvísindadeild vill hafa tækifæri til að senda brautskráðum stúdentum upplýsingar sem varða deildina, t.a.m. vegna fyrirlestra eða annarra atburða sem deildin á aðild að.
  • Námsgrein: Við Félags- og mannvísindadeild eru margar námsgreinar og því mikilvægt að tilgreina rétta námsgrein ásamt skiptingu í aðal- og aukagrein ef við á.
  • Ritgerðarheiti: Nemendur sem ljúka BA- eða MA/MLIS-prófi þurfa að skila inn ritgerðarheitum eins og þau koma fram á ritgerð og verða þau skráð í brautskráningargögn. Ritgerðarheiti þurfa að vera bæði á íslensku og ensku.
  • Umsjónarmaður ritgerðar: Allir nemendur hafa umsjónarmann ritgerðar en hann er fastráðinn kennari við deild. Nafn hans skal ávallt skrá á lokaritgerð enda eru skil lokaritgerðar háð samþykki hans. Ef leiðbeinendur eru fleiri en einn ber að skrá nöfn allra.
  • Meðhöfundur: Ef höfundar ritgerðar eru tveir eða fleiri er nauðsynlegt að geta þess hér. Nemendur þurfa að gæta þess að samræmi sé í skráningum, m.a. á ensku heiti ritgerðar.
  • Fjöldi eininga að baki MA-ritgerðar: Í rannsóknartengdu MA-námi getur ritgerð nemanda verið allt frá 40e í 60e og tilkynna þarf því um einingafjölda.
  • Nemandi viðstaddur brautskráningarathöfn: Engin athöfn er vegna brautskráningar í október en haldin er sérstök barutskráningarathöfn í febrúar og júní. Vegna mikils fjölda nemenda er nauðsynlegt að allir þeir sem ætla að mæta á athöfn séu skráðir til þess.

Bent er á að ekki er heimilt að útskrifast með fleiri einingar en kennsluskrá kveður á um, og eru umfram námskeið færð á annan feril sem nemandi getur fengið útprentaðan hjá þjónustuborði á Háskólatorgi. Hafi nemandi ekki sérstakar óskir um hvaða námskeið eru færð af námsferli eru eftirfarandi vinnureglur hafðar að leiðarljósi:

  • Skyldunámskeið eru aldrei færð af ferli
  • Ef val er á milli tveggja námskeiða eða fleiri eru þau námskeið færð sem hafa lægri einkunn