Háskóli Íslands brautskráir nemendur þrisvar á ári, í febrúar, júní og október. Nemendur þurfa að vera skráðir í brautskráningu og staðfesta beiðni um brautskráningu til deildar með því að fylla út neðangreint form.

Leiðbeiningar til útfyllingar:

Nafn: Á öllum pappírum sem viðkoma brautskráningu er fullt nafn viðkomandi nemanda notað eins og það er skráð í þjóðskrá.

Sími: Við úrvinnslu fyrir brautskráningu getur verið nauðsynlegt að ná sambandi við nemanda símleiðis. Það símanúmer sem nemandi gefur upp hér er ekki birt öðrum en þeim sem vinna að brautskráningu hverju sinni.

Netfang utan HÍ: Félags- og mannvísindadeild vill hafa tækifæri til að senda brautskráðum stúdentum upplýsingar sem varða deildina, t.a.m. vegna fyrirlestra eða annarra atburða sem deildin er aðila að.

Námsleið: Við Félags- og mannvísindadeild eru nokkrar námsleiðir í boði. Því er mikilvægt að merkja við rétta námsleið.

Nemandi viðstaddur brautskráningarathöfn: Engin brautskráningarathöfn er vegna brautskráningar í október en haldin er sérstök athöfn í febrúar og júní. Vegna mikils fjölda nemenda er nauðsynlegt að allir þeir sem ætla að mæta á athöfn séu skráðir til þess. Bent er á að ekki er heimilt að útskrifast með fleiri einingar en kennsluskrá kveður á um, og eru umfram námskeið færð á annan feril sem nemandi getur fengið útprentun á hjá þjónustuborði á Háskólatorgi. Hafi nemandi ekki sérstakar óskir um hvaða námskeið er færð af námsferli, eru eftirfarandi vinnureglur hafðar að leiðarljósi:

  • Skyldunámskeið eru aldrei færð af ferli
  • Ef val er á milli tveggja námskeiða eða fleiri eru þau námskeið færð sem hafa lægri einkunn