Umsókn um nám

Velkomin í Háskóla Íslands

Engin skólagjöld eru í Háskóla Íslands en árlegt skrásetningargjald er 60.000 kr. 

Námsráðgjafar Háskóla Íslands, starfsfólk Nemendaskrár og starfsfólk fræðasviða og deilda veita fúslega upplýsingar og aðstoð.

Frestur til að skila umsóknum og ferli umsókna er misjafnt eftir því hvaðan umsækjendur koma og um hvaða nám er sótt.

Grunnnám, íslenskir umsækjendur

Umsóknarfrestur um grunnnám á háskólaárinu 2012-2013 er til 5. júní 2012. Móttaka umsókna hefst í mars 2012. 

Framhaldsnám, íslenskir umsækjendur

Frestur til að sækja um framhaldsnám er til 15. apríl en til 15. október ef sótt er um nám sem hefst á vormisseri (þ.e. ef deildir heimila innritun í framhaldsnám á vormisseri). Athugið að ekki taka allar deildir við umsóknum í framhaldsnám á vormisseri og einungis hluti námsleiða við skólann er þá í boði.

Erlendir umsækjendur

Fyrir erlenda umsækjendur er umsóknarfrestur í grunn- og framhaldsnám til 1. febrúar 2012 (háskólaárið 2012-2013).

Skiptistúdentar

Þeir sem hyggjast taka hluta af námi sínu sem skiptistúdentar við Háskóla Íslands þurfa að sækja um fyrir 1. maí (1. október ef sótt er um innritun í framhaldsnám á vormisseri).

deila á facebook