Tengiliðaverkefni Alþjóðaskrifstofu HÍ og Stúdentaráðs HÍ
Vilt þú eignast alþjóðlegan vinahóp og bæta tungumálakunnáttu þína?
Það að vera tengiliður erlends skiptistúdents (buddy) getur bæði verið gefandi og skemmtilegt og er því upplagt tækifæri fyrir alla stúdenta, sérstaklega þá sem leggja stund á erlend tungumál eða þá sem hafa sjálfir hug á að fara í skiptinám eða kynnast fólki frá öðrum menningarsvæðum.
Hlutverk tengiliðs er að vera skiptistúdentum innan handar við komu til landsins, aðstoða við hagnýt atriði, kynna félagslíf, aðstoða við að kynnast og aðlagast nýju umhverfi og koma í veg fyrir félagslega einangrun.
Dæmi:
- Móttaka á flugvelli eða við rútu
- Umsókn um kennitölu hjá Þjóðskrá og innritun í HÍ
- Kynna háskólasvæðið, strætisvagnakerfi, helstu matvöruverslanir, sundlaugar, íþróttahús
- Vera til taks ef á þarf að halda
- Hafa frumkvæði að því að hafa samband og bjóða fram aðstoð og félagsskap
- Kynna félagslíf HÍ
Alþjóðaskrifstofa og Stúdentaráð mun standa fyrir skemmtilegum viðburðum fyrir skiptistúdenta og tengiliði þeirra, auk þess sem tengiliðir eru velkomnir á viðburði sem skipulagðir eru sérstaklega fyrir erlenda stúdenta svo sem ferðir, partí (þar á meðal vikuleg partí ESN Reykjavík), og Þorrablót.
Rafrænni skráningu hefur verið lokað. Fyrirspurnir sendist á Stúdentráð, netfangið buddy@hi.is.

