Stúdentaíbúðir

Félagsstofnun stúdenta rekur Stúdentagarða á háskólasvæðinu. Upplýsingar og umsóknir má fá á vefsíðu Stúdentagarða.

Einnig er hægt að sækja um íbúðir hjá Byggingafélagi námsmanna en þeir reka íbúðir á tíu stöðum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu og á Laugarvatni.

Stúdentagarðar

Hlutverk Stúdentagarða er að bjóða námsmönnum við Háskóla Íslands til leigu hentugt og vel staðsett húsnæði á sanngjörnu verði. Húsnæðið er af ýmsum stærðum og gerðum. Einstaklingsherbergi og íbúðir, tvíbýli, fjórbýli, paríbúðir og tveggja, þriggja og fjögurra herbergja fjölskylduíbúðir. Garðarnir eru Gamli Garður, Skerjagarður, Hjónagarðar, Vetrargarður, Skuggagarðar og Ásgarðahverfið. Allt húsnæði Stúdentagarða hefur aðgang að tölvuneti HÍ.

Allar nánari upplýsingar eru á vef Stúdentagarða.

Á Laugarvatni rekur Byggingafélag Námsmanna fjölbýlishús á Laugarbraut 1, 3 og 5. 

Vatnagarður  er heimavist sem Háskólinn rekur í skólahúsi á Lindarbraut 4 á Laugarvatni. Þar búa nemendur í eins eða 2ja manna herbergjum með baðherbergi. Sameiginleg og rúmgóð aðstaða er í setustofu, borðstofu og eldhúsi. Innangengt er í kennslustofur á Vatnagarði.

Húsnæðismiðlun

Stúdentamiðlun rekur húsnæðismiðlun þar sem húsnæði er miðlað til námsmanna við Háskóla Íslands. Húsnæðiseigendur geta skráð eignir sínar hér til leigu gegn vægu gjaldi, hvort sem um er að ræða herbergi eða íbúðir. Stúdentar við HÍ geta síðan skoðað auglýsingarnar og sett sig í samband við eiganda. Þegar húsnæði hefur verið leigt getur leigusali tekið auglýsinguna sína út. Stúdentamiðlun er ekki ráðgefandi varðandi leiguverð og leggur hvorki mat á leigusala né leigutaka í neinu tilliti. 

deila á facebook