Starfsemi

Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands. Háskólinn veitir nemendum víðtæka menntun á fjölmörgum fræðasviðum og þjónar stofnunum, fyrirtækjum og stjórnvöldum í þágu almannaheilla. Háskóli Íslands er traustur og viðurkenndur rannsóknaháskóli í hinu alþjóðlega vísindasamfélagi og vinnur markvist að því að efla samkeppnishæfni Íslands í vísindum, atvinnuþróun og menningu í þekkingarsamfélagi nútímans.

Lifandi samfélag

Við Háskólann starfa á hverjum degi þúsundir manna. Nemendur eru hátt í 14.000 og starfsfólk og kennarar eru á þriðja þúsund. Háskóli Íslands er lifandi samfélag þar sem nemendur og kennarar vinna í sameiningu að því að efla vísindi og fræði. Háskólinn hefur sett sér metnaðarfullt markmið um að komast í hóp fremstu háskóla heims og á hverjum einasta degi er unnið að því að bæta kennslu, rannsóknir og aðstöðu við skólann.

Fjölbreytt mannlíf

Mannlífið í Háskólanum er afar fjölbreytt. Hundruð erlendra nema stunda árlega nám við skólann og erlendir fyrirlesarar eru nær daglegir gestir. Á ári hverju eru fjölmargir viðburðir, opnir fyrirlestrar, háskólatónleikar og ráðstefnur og yfir 35.000 manns sækja slíka viðburði árlega. Félagslífið er fjölbreytt og fjölmörg nemendafélög eru starfrækt við skólann, auk Stúdentaleikhússins og Háskólakórsins.

deila á facebook