Hlutverk rektors
Samkvæmt lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008 er rektor formaður háskólaráðs, yfirmaður stjórnsýslu Háskólans og æðsti fulltrúi hans gagnvart mönnum og stofnunum innan skólans og utan. Hann hefur frumkvæði að því að háskólaráð marki heildarstefnu í málefnum Háskólans.
Rektor ber ábyrgð á og hefur eftirlit með allri starfsemi skólans og á milli funda háskólaráðs fer hann með ákvörðunarvald í öllum málum Háskólans. Rektor ræður starfslið sameiginlegrar stjórnsýslu Háskólans og setur því starfslýsingar. Menntamálaráðherra skipar rektor til fimm ára samkvæmt tilnefningu háskólaráðs, að undangengnum almennum kosningum í Háskólanum.
Skrifstofa rektors
Starfsemi skrifstofu rektors helgast af því að framfylgja lögskipuðu hlutverki háskólarektors, gæta heildarhagsmuna Háskóla Íslands og greiða fyrir því að stefna Háskólans um framúrskarandi kennslu, rannsóknir og þjónustu við samfélagið megi ganga fram. Skrifstofa rektors hefur umsjón með stefnumótun og þróunar- og gæðamálum Háskólans.
Skrifstofa rektors hefur umsjón með málefnum sameiginlegrar stjórnsýslu Háskólans, háskólaþingi, fundum háskólaráðs, ársfundi Háskólans og fundum rektors með forsetum fræðasviða. Einnig hefur skrifstofa rektors með höndum samskipti rektors við fulltrúa stjórnvalda, atvinnulífs, innlendra og erlendra háskóla- og rannsóknastofnana og samtaka þeirra, fulltrúa erlendra ríkja og fyrirtækja og stofnana Háskólans.
Náin samvinna er við aðstoðarrektor vísinda og kennslu, framkvæmdastjóra fjármála og reksturs, forseta fræðasviða, deildarforseta, gæðastjóra og sviðsstjóra sameiginlegrar stjórnsýslu.
Á rektorsskrifstofu fer ennfremur fram margvísleg önnur starfsemi, svo sem móttaka og afgreiðsla erinda sem berast Háskólanum, afgreiðsla viðtala eftir pöntun, miðlun upplýsinga til starfsmanna og stúdenta, umsjón með nefndum og starfshópum á vegum rektors og háskólaráðs, útgáfa Árbókar Háskólans, umsjón með úthlutunum úr Háskólasjóði, brautskráningu kandídata, veitingu viðurkenninga til starfsmanna, málþingum, ráðstefnum, fyrirlestrum, boðum og samkomum á vegum rektors.
Rektorsskrifstofa er opin alla virka daga frá kl. 9.00-16.00 og er staðsett í Aðalbyggingu, 1. hæð - suður. Símanúmer er 525 4302, fax: 525 4038, netfang: rektor@hi.is
Viðtalstímar rektors eru eftir samkomulagi.
Dagatal Háskólans háskólaárið 2011-2012 (.pdf)
Starfsfólk rektorsskrifstofu
| Nafn | Staða | Símanúmer |
| Kristín Ingólfsdóttir | Rektor | 525 4302 |
| Jón Atli Benediktsson | Aðstoðarrektor vísinda og kennslu | 525 4047 |
| Daði Runólfsson | Verkefnisstjóri | 525 4303 |
| Heiðrún Kristjánsdóttir | Verkefnisstjóri | 525 4302 |
| Magnús Diðrik Baldursson | Skrifstofustjóri | 525 4206 |
| Margrét Ludwig | Verkefnisstjóri - í leyfi til 1. október 2012 | 525 4303 |
| Sæunn Stefánsdóttir | Sérfræðingur | 525 4041 |

