Sjóðir og styrkir

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands

Styrktarsjóðir Háskóla Íslands hafa umsjón með sjóðum og gjöfum sem ánafnaðar hafa verið Háskóla Íslands. Þeim er ætlað að styðja við ýmis verkefni á ákveðnum fræðasviðum til hagsældar fyrir Háskóla Íslands, stúdenta eða starfsfólk. Á heimasíðu sjóðanna er listi yfir styrki innan hvers fræðasviðs.

Nánari upplýsingar: sjodir@hi.is.

Að neðan eru upplýsingar um þá sjóði sem nemendur, fræði- og vísindamenn geta sótt í. Með því að smella á heiti hvers sjóðs birtast nauðsynlegar upplýsingar ásamt krækjum á eyðublöð og reglur.

Upplýsingar um umsóknarfresti sjóða.

Nánari upplýsingar veitir Sverrir Guðmundsson á vísindasviði, sími 525 4352 sverrirg@hi.is.

Aðstoðarmannasjóður

  • Markmið Aðstoðarmannasjóðs er að gera kennurum kleift að ráða sér stúdent sem aðstoðarmann við rannsóknir og/eða kennslu þannig að stúdentinn öðlist þjálfun og færni í faglegum vinnubrögðum. Umsjón með sjóðnum er í höndum fræðasviða.

Afreks- og hvatningasjóður stúdenta HÍ 

  • Markmið sjóðsins er að veita styrki til nemenda sem náð hafa afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands.

Doktorsstyrkir Rannsóknasjóðs

  • Fastráðnir kennarar eða sérfræðingar við Háskóla Íslands, sem uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til leiðbeinenda í doktorsnámi, geta sótt um styrkina. Einnig er hægt að sækja um þó samstarf leiðbeinanda og stúdents sé hafið. 
  • Umsóknarfrestur er til 15. janúar.

Ferðastyrkir Rannsóknasjóðs

  • Ferðastyrkir til handa doktorsnemum við Háskóla Íslands. Styrkirnir eru ætlaðir til ráðstefnuferða þar sem doktorsneminn er með framlag í formi veggspjalds eða erindis. Umsóknarfrestur er til 1. maí.

Framtal starfa -Vinnumatssjóður og Ritlauna- og rannsóknasjóður prófessora (Rannsóknaskýrsla)

  • Starfsmenn Háskólans með rannsóknaskyldu eiga að skila skýrslu um störf sín fyrir 1. febrúar ár hvert (prófessorar og starfsmenn Menntavísindasviðs) og 1. mars (Fél. hásk.). Eyðublað í Uglu undir "Framtal starfa".

Háskólasjóður Eimskipafélags Íslands

  • Doktorsnemar við Háskóla Íslands og fastráðnir kennarar eða sérfræðingar við Háskóla Íslands geta sótt um styrkinn, sem uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til leiðbeinenda í doktorsnámi. Í sérstökum tilvikum geta meistaranemar sótt um styrk.
  • Umsóknarfrestur til 15. janúar.

Mótframlagasjóður við tækjakaup

  • Þegar sótt er um stuðning Tækjasjóðs Vísinda- og tækniráðs til kaupa á tækjum eða búnaði til rannsókna þarf umsækjandi að geta sýnt fram á að mótframlag fáist frá Háskólanum. Þeir sem hyggjast sækja um stuðning Tækjasjóðs geta sótt um styrk fyrir hluta mótframlagsins til Mótframlagasjóðs Háskóla Íslands. Umsóknir skal senda skrifstofu vísindasviðs áður en umsóknarfrestur rennur út hjá Tækjakaupasjóði Vísinda- og tækniráðs. Með umsókn til Mótframlagasjóðs skulu fylgja drög að umsókn til Tækjasjóðs.

 Nýdoktorastyrkir Rannsóknasjóðs

  • Styrkir ætlaðir nýdoktorum (post-docs) sem hlotið hafa rannsóknastöðustyrk frá viðurkenndum aðila til að leggja stund á rannsóknir við Háskóla Íslands. 
  • Umsóknarfrestur til 1. mars.

Rannsóknasjóður

  • Tilgangur Rannsóknasjóðs Háskóla Íslands er að efla rannsóknastarfsemi í Háskólanum. Stjórn sjóðsins er í höndum vísindanefndar háskólaráðs og er formaður nefndarinnar jafnframt formaður stjórnar sjóðsins. Úthlutað er einu sinni á ári. 
  • Næsti umsóknarfrestur til 10. október.

Sáttmálasjóður

  • Upplýsingar um Sáttmálasjóð er að finna í Uglu (undir tenglinum „Fjárreiður“).

Tækjakaupasjóður

  • Sérhæfðu tækjakaupafé er úthlutað af tækjakaupanefnd á grundvelli umsókna frá kennurum og sérfræðingum, sem forgangsraðað er af vísindanefndum deilda. Umsóknarfrestur til 15. mars.

Handbók um styrki

  • Síða á vegum Alþjóðaskrifstofu. Fyrir nemendur og kennara.

Styrkjadagatal

  • Síða á vegum Rannsóknasjónustunnar. Flokkun: Allir styrkir - Ferðir og ráðstefnur - Námsstyrkir - Rannsóknir - Samstarf.
deila á facebook