Náms- og starfsráðgjöf Háskóla Íslands (NSHÍ) veitir nemendum Háskólans margs konar stuðning og þjónustu meðan á námi stendur, svo sem ráðgjöf um námsval og vinnubrögð og úrræði vegna fötlunar og sérþarfa.
Þeir sem hyggja á nám við Háskóla Íslands eru velkomnir í NSHÍ til að fá ráðgjöf vegna námsvals.
Daglega eru opnir viðtalstímar þar sem bæði almenningur og nemendur HÍ fá upplýsingar og ráðgjöf. Sjá nánari upplýsingar á vef NSHÍ.
Skrifstofa NSHÍ er á 3. hæð Háskólatorgs,
sími: 525-4315,
netfang: radgjof@hi.is

