Ljósritun og fjölritun

Fjöldi fyrirtækja bjóða nemendum og kennurum ljósritunar-, fjölritunar- og prentþjónustu.

Háskólaprent er fyrirtæki á Háskólasvæðinu sem hefur sérhæft sig í að þjónusta Háskólafólk. Það gefur út greinasöfn og frumsamdar kennslubækur fyrir námskeið við HÍ og vinnur lokaritgerðir fyrir nemendur Háskóla Íslands. Auk þess vinnur Háskólaprent ótalinn fjölda smærri verka fyrir nemendur, kennara og stofnanir, t.a.m. bæklinga, ritgerðir, bækur, OCR skönnun o.s.frv.

Háskólaprent er staðsett á Fálkagötu 2 á horninu á Fálkagötu og Suðurgötu.

Bóksalan í húsnæði skólans við Stakkahlíð sér um ljósritun og rekur ljósritunarvélar sem staðsettar eru í Stakkahlíð, Skipholti og á Laugarvatni.

deila á facebook