Lánasjóður íslenskra námsmanna
Hægt er að sækja um framfærslulán meðan á námi stendur hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN) í Borgartúni 21.
Lánasjóðsfulltrúi stúdenta hefur aðsetur á skrifstofu Stúdentaráðs á þriðju hæð á Háskólatorgi. Hann aðstoðar stúdenta í samskiptum þeirra við LÍN.
Framfærslutafla Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
Stúdentamiðlun - atvinnumiðlun
Stúdentamiðlun rekur atvinnumiðlun. Markmið hennar er annars vegar að auðvelda námsmönnum leit að starfi, einkum sumar-, hluta- eða tímabundnu starfi. Hins vegar að auðvelda atvinnurekendum að finna fólk í umrædd störf. Allar nánari upplýsingar er að finna á síðu Stúdentamiðlunar.
Húsaleigubætur
Allir nemendur í leiguhúsnæði ættu að athuga hvaða rétt þeir eiga á húsaleigubótum. Umsóknareyðublöð er að finna hér.

