Að stunda háskólanám snýst ekki aðeins um að sitja fyrirlestra og læra heima. Félagslíf er mikilvægur þáttur háskólanáms.
Stúdentaráð stendur fyrir stórum atburðum ætluðum öllum nemendum skólans. Stúdentadagar, Októberfest og próflokaballi eftir haust- og vormisseri eru meðal þeirra.
Hver deild rekur sitt nemendafélag og eru nemendur hvattir til þess að skoða hvaða nemendafélag stendur þeim næst.
Í Háskóladansinum læra nemendur hressilegt Boogie Woogie, hip-hop, lindy hop, salsa og swingað rokk og ról og margt fleira.
Stúdentaleikhúsið stendur alltaf fyrir sínu. Tvær sýningar á ári eru settar upp á vegum þess. Í Stúdentaleikhúsinu er alls konar fólk. Flest á það sameiginlegt að vera ofurlítið athyglissjúkir stúdentar við HÍ. Eina skilyrði fyir inngöngu í Stúdentaleikhúsið er að hafa lokið framhaldsskólaprófi.
Tónelskir stúdentar við Háskólann geta fundið sér eitthvað við hæfi. Við skólann eru starfræktir tveir kórar, Kvennakór HÍ og Háskólakórinn.
Ýmis hagsmunafélög eru starfrækt við HÍ
- Félag Femíniskra stúdenta
- ESN- Reykjavík er félag erlendra nemenda við HÍ
- Hagsmunafélag foreldra við HÍ
- Manía sem er geðverndarfélag innan HÍ
- Q- Félag hinsegin stúdenta er fyrir þá sem eru samkynhneigðir, tvíkynhneigðir, trans, gangkynhneigðir eða bara hinsegin
- Skyn sem er hagsmunafélag stúdenta innan HÍ með sértæka námsörðugleika.

