Bókasöfn og bóksala

Bókasöfn Háskóla Íslands

Á háskólasvæðinu er öll þjónusta sem nemendur þurfa til þess að nálgast bækur og kennslugögn. Nemendur hafa aðgang að fullkomnasta bókasafni landsins, Landsbókasafni – Háskólabókasafni.

Eftir sameiningu Háskóla Íslands og Kennaraháskóla Íslands geta stúdentar og starfsfólk sameinaðs háskóla sótt bókasafnsþjónustu á þrjá staði. Bókasafnsskírteini eru án endurgjalds.

  • Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn – Safnkostur á öllum efnissviðum. Safnið er bókasafn Háskóla Íslands samkvæmt lögum nr. 71/1994. Það rekur nokkur útibú í tengslum við lestraraðstöðu á vegum Háskóla Íslands
  • Bókasafn menntavísindasviðs – Safnkostur einkum á sviði menntavísinda. Var áður bókasafn Kennaraháskóla Íslands.
  • Heibrigðisvísindabókasafn – Safnkostur einkum á sviði heilbrigðisvísinda. Hefur til þessa veitt læknadeild og hjúkrunarfræðideild HÍ bókasafnsþjónustu

Bóksala og skiptibókamarkaður

Bóksala stúdenta selur nemendum allar námsbækur sem þeir þurfa, ritföng og önnur námsgögn. Á menntavísindasviði er bóksala sem þjónustar stúdenta sviðsins. Á vef Stúdentamiðlunar er skiptibókamarkaður þar sem nemendur geta leitað að notuðum námsbókum og skráð sínar bækur til sölu.

deila á facebook