Leikskólar
Félagsstofnun stúdenta rekur Leikskóla FS á háskólasvæðinu. Þeir heita Sólgarður, Mánagarður og Leikgarður. Einnig gefst nemendum á Laugarvatni kostur á að notfæra sér skóla og leikskóla á svæðinu. Leikskólinn Gullkistan á Laugarvatni og Grunnskóli Bláskógabyggðar á Laugarvatni.
Barnagæslumiðlun
Stúdentamiðlun rekur m.a. barnagæslumiðlun en hlutverk barnagæslumiðlunar er að auðvelda námsmönnum leit að barnagæslu. Annars vegar geta námsmenn auglýst eftir aðila til að gæta barna sinna og hins vegar geta þeir sem óska þess að gæta barna auglýst þjónustu sína. Barnagæslumiðlun er ókeypis fyrir báða aðila.

