Alþjóðasamskipti

Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands annast formleg samskipti Háskólans við erlendar menntastofnanir og veitir stúdentum, kennurum og deildum Háskóla Íslands ýmsa þjónustu varðandi alþjóðlegt samstarf. Alþjóðaskrifstofan er til húsa á Háskólatorgi 3. hæð, sími 525 4311 ask@hi.is 

Háskóli Íslands á samstarf við mörg hundruð erlenda háskóla um nemendaskipti, rannsóknir, starfsmannaskipti og fleira.

Samstarfskólarnir eru á Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndum í gegnum Nordplus, í Evrópu í gegnum Erasmus, Isep og Maui net til Bandaríkjanna, Crepuq net til Kanada, Aen net til Ástralíu og einnig eru fjölmargir tvíhliðasamningar við einstaka háskóla vítt og breitt.

Stúdentar og kennarar geta sótt um styrki gegnum Nordplus áætlunina. Stúdentar, kennarar og annað starfsfólk geta sótt um styrki gegnum Erasmus áætlunina.

Önnur samstarfsnet (utan Evrópu) felast fyrst og fremst í samstarfi varðandi stúdentaskipti og fela í sér niðurfellingu á skólagjöldum við gestaskólann. Tvíhliðasamningar geta verið nokkuð breytilegir en í flestum þeirra felst samstarf varðandi stúdenta- og starfsmannaskipti auk ýmiss almenns stamstarfs (t.d. rannsóknasamstarf, aðgang að gögnum o.fl.)

Nánar um alþjóðlegt samstarf fyrir stúdenta

Nánar um alþjóðlegt samstarf fyrir kennara og annað starfsfólk 

deila á facebook