Norrænt meistaranám í öldrunarfræðum
Að eldast er viðfangsefni flestra, öldrunarfræði er þverfagleg grein sem skoðar öldrun út frá mismunandi sjónarhornum og áherslum. Öldrunarfræði miðar að því kynna fyrir nemendum helstu þætti sem hafa áhrif á velferðarmál aldraðra, öldrunarþjónustu, stefnumótun, löggjöf og framkvæmd á sviðum félags- og heilbrigðisþjónustu.
Fjallað er um helstu málefni og ágreiningsefni tengd öldrun og öldruðum, s.s. afleiðingar öldrunar, þætti sem liggja til grundvallar öldrunarferlinu, vellíðan á efri árum, leiðir til að stuðla að heilbrigðri öldrun o.fl. Þá er lögð sérstök áhersla á að kynna nemendum norræna öldrunarþjónustu og gera þá hæfari til að taka þátt í norrænu rannsóknasamstarfi.
Nám og markmið
Samnorrænt meistaranám í öldrunarfræðum (NordMaG) er 120 eininga þverfaglegt nám sem fer fram í þremur löndum, Finnlandi, Svíþjóð og Íslandi. Markmið með náminu er að dýpka þekkingu nemenda á málefnum aldraðra og kynna þeim svið öldrunarfræða, kenningar og vinnuaðferðir og gera þá hæfari til að vinna með öðrum starfsstéttum að velferðarmálum aldraðra.
Kennsla
Þverfræðilegt meistaranám í öldrunarfræðum, er skipulagt sameiginlega af Háskóla Íslands, háskólanum í Lundi í Svíþjóð og háskólanum í Jyväskylä í Finnlandi. Í Háskóla Íslands er námið vistað hjá félagsráðgjafardeild, í háskólanum í Lundi innan læknisfræðideildar og í háskólanum í Jyväskylä innan íþrótta- og heilbrigðisvísindadeildar. Nemendur þurfa að taka a.m.k. 30 ECTS við annan hvorn samstarfsskólann.
Atvinnumöguleikar
Að loknu námi í öldrunarfræði hafa einstaklingar styrkt stöðu sína á vinnumarkaði með hagnýtu og fræðilegu námi á sviðum öldrunarfræða. Þeir sem leggja stund á öldrunarfræði koma úr ólíkum starfstéttum, m.a en ekki eingöngu:
- Hjúkrunarfræðingar
- Þroskaþjálfar
- Sjúkraþjálfarar
- Iðjuþjálfar
- Félagsráðgjafar
Hafa samband
Skrifstofa Félagsráðgjafardeildar
Gimli v. Sæmundargötu
Sími: 525-5206
Netfang: felagsradgjof@hi.is
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
- Háskólinn í nærmynd

