Sjúkraþjálfun

 

 

Hefur þú áhuga á fjölbreyttu og gefandi starfi þar sem m.a. er unnið að forvörnum, þjálfun, hæfingu og endurhæfingu fólks, hvort sem það er heilbrigt, veikt eða fatlað?

Þá er nám í sjúkraþjálfun góður kostur fyrir þig.

Starfssvið sjúkraþjálfara er mjög fjölbreytt. Sjúkraþjálfarar greina og meðhöndla hreyfitruflanir og orsakir þeirra, hjá fólki sem er allt frá því að vera rúmliggjandi á sjúkrahúsum til þess að vera keppnisfólk í íþróttum. Þar að auki fást sjúkraþjálfarar við að koma í veg fyrir eða draga úr afleiðingum áverka, álagseinkenna, sjúkdóma og lífsstíls sem með truflun á hreyfingu geta raskað lífi einstaklingsins.

NámiðFyrir nemendurNámsbrautin