Meistaranám í upplýsingatækni á heilbrigðissviði
Nám í upplýsingatækni á heilbrigðissviði er tveggja ára þverfræðilegt, rannsóknatengt nám á meistarastigi. Námið er skipulagt sameiginlega af fimm háskóladeildum: félagsvísindadeild, hjúkrunarfræðideild, lyfjafræðideild, læknadeild, og verkfræðideild. Einnig á Landspítali aðild að náminu. Námið er hýst í hjúkrunarfræðideild.
Styrkur þverfræðilegs náms birtist m.a. í samstarfi ólíkra greina innan Háskóla Íslands. Má þar nefna allar heilbrigðisvísindagreinar, siðfræði, verkfræði, tölvunarfræði, tölfræði, félagsvísindi, upplýsingafræði, svo dæmi séu nefnd.
Ekki verður tekið inn í námið 2010-2011.
Heimasíða upplýsingatækni á heilbrigðissviði

