Norrænt meistaranám í öldrunarfræði



Námið er skipulagt sameiginlega af félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, læknisfræðideild Háskólans í Lundi í Svíþjóð og íþrótta- og heilbrigðisvísindadeild Háskólans í Jyväskylä í Finnlandi og styrkti Norræna ráðherranefndin undirbúning þess. Þetta er fyrsta verkefnið af þessum toga sem Háskóli Íslands stendur að.

Kennt er í fjarnámi og staðlotum í Reykjavík, Jyväskylä í Finnlandi og Lundi í Svíþjóð. Nemendur þurfa að taka 30 einingar af náminu í námskeiðum við aðra/annan skóla en sinn heimaskóla. Nemendur bera kostnað vegna ferðlaga og dvalar erlendis sjálfir.

Fyrsta inntaka í námið var fyrir haustið 2008. Næst verður tekið inní námið haustið 2009.

Hverjir geta sótt um?

Markmið með námi

Heimasíða norræns meistaranáms í öldrunarfræði

deila á facebook