Meistaranám í lýðheilsuvísindum
Lýðheilsuvísindi er þverfræðilegt meistara- og doktorsnám sem veitir fræðilega menntun á sviðum rannsókna á heilsufari fólks ásamt stefnumótun forvarna og almennrar heilsueflingar sem byggist á slíkum rannsóknum. Megináhersla námsins er á rannsóknar- og forvarnaraðferðir og er það góður undirbúningur fyrir fólk með fjölbreyttan fræða- og/eða starfsbakgrunn sem ætlar sér leiðtogahlutverk á hinum mörgu sviðum heilbrigðismála.
Að náminu standa allar deildir Háskóla Íslands og er stofnun námsins liður í framkvæmd stefnu Háskólans um að nýta fjölbreytni í starfsemi skólans og alþjóðleg tengsl til þess að efla þverfræðilegt nám og rannsóknir.
Námið er skipulagt í samvinnu við erlendar menntastofnanir (t.d. Harvard, Karolinska Institutet, NHV) og innlendar rannsóknarstofnanir (t.d. Landlæknisembættið, Hjartavernd, Krabbameinsfélag Íslands, Lýðheilsustöð) á sviðum lýðheilsuvísinda. Nemendur hafa kost á að stunda hluta náms síns við eða undir leiðsögn kennara og sérfræðinga þessara stofnana og útfæra rannsóknir sínar þar eða á eigin vinnustöðum.

