Langar þig að takast á við eina af stóru áskorunum 21. aldarinnar - að nýta endurnýjanlega orkugjafa á sjálfbæran hátt?
Meistaranámið í endurnýjanlegri orku er einstakt tækifæri fyrir nemendur í verkfræði, raunvísindum og hagfræði til að sérhæfa sig á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Vegna aukinna áskoranna á þessum vettvangi er mikil þörf á fagfólki með sérþekkingu á þessu sviði sem geta skipulagt, metið og stjórnað viðfangsmiklum og flóknum verkefnum í samvinnu við sérfræðinga á ýmsum sviðum. Meistaranámið í endurnýjanlegri orku við Háskóla Íslands er vel til fallið fyrir nemendur sem stefna á starfsferil á sviði jarðhitaverkfræði, vatnsaflsverkfræði, raforkuverkfræði, jarðvísinda, og umhverfis- og auðlindafræði.
Háskóli Íslands hefur um árabil verið leiðandi í kennslu og rannsóknum á endurnýjanlegri orku á Íslandi. Mikil tækifæri felast í rannsóknum og þróun á endurnýjanlegum orkugjöfum, bæði á Íslandi sem og á heimsvísu, og ljóst að sjálfbær orkunýting mun verða eitt af stóru verkefnunum á þessari öld. Háskóli Íslands hefur því ákveðið að efla enn frekar rannsóknatengt framhaldsnám í endurnýjanlegri orku með því að bjóða upp á meistaranám í endurnýjanlegri orku.
Nemendum í framhaldsnáminu gefst tækifæri á að vinna með vísindamönnum og verkfræðingum sem eru fremstir á sínu sviði í verkefnum tengt endurnýjanlegri orku, t.d. á sviði jarðhita, vatnsafls, raforku, og sjálfbærni. Nemendurnir fá m.a. kynningu á þeim endurnýjanlegu orkugjöfum sem eru virkjaðir hér á landi með kennslu og vettvangsferðum með sérfræðingum innan sviðsins í inngangsnámskeiði í endurnýjanlegum orkufræðum. Nemendurnir fá einnig tækifæri til þess að vinna með fyrirtækjum hérlendis sem eru leiðandi á sviði endurnýjanlegrar orku í þverfaglegu verkefnanámskeiði þar sem nemendur með mismunandi bakgrunn í verkfræði, raunvísindum, orkuhagfræði, umhverfis- og auðlindafræði, vinna saman í hópum. Nemendur með framhaldsmenntun á sviði endurnýjanlegrar orku eru eftirsóttir starfskraftar hjá orkufyrirtækjum, iðnfyrirtækjum, ráðgjafafyrirtækjum, sveitarfélögum, ráðuneytum, ríkisstofnunum, mennta- og rannsóknastofnunum.
Námið er 120 ECTS eininga meistaranám sem skiptist í 20 – 30 ECTS skyldunámskeið, tengt hverju kjörsviði, sameiginlegt inngangsnámskeið í endurnýjanlegum orkufræðum og þverfaglegs verkefnis sem bindur saman námið, alls 10 ECTS. Nemendur gera svo í lokin 30-60 ECTS eininga meistaraverkefni. Utan skyldunámskeiðanna er hægt að velja úr fjölda valnámskeiða innan viðkomandi kjörsviðs og á öðrum kjörsviðum.
Kjörsvið |
deild |
---|---|
Jarðhitaverkfræði | Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild |
Orkuverkfræði | Umhverfis- og byggingarverkfræðideild |
Vistvæn orkuverkfræði | Rafmagns- og tölvuverkfræðideild |
Jarðhitavísindi | Jarðvísindadeild |
Orkuhagfræði, orkustefnumótun og sjálfbærni | Umhverfis- og auðlindafræði |
Hvar starfa sérfræðingar á sviði endurnýjanlegrar orku?
Sérfræðingar á sviði endurnýjanlegrar orku starfa meðal annars við:
- Hönnun og framkvæmdir orkumannvirkja
- Rannsóknir á virkjanakostum
- Mat á umhverfisáhrifum virkjanaframkvæmda
- Mat á stærð og hagkvæmni orkukosta
- Rannsóknir á jarðhitageiranum