Skip to main content

Doktorsnám við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild

Nemendur sitja við borð.

Doktorsnám við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild

Doktorspróf - 210 einingar

. . .

Deildin býður upp á fjölbreytt framboð doktorsnáms, námið er 180 eininga doktorsritgerð og 30 einingar í námskeiðum á fræðasviði doktorsverkefnis.

Um námið

Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild býður upp á fjölbreytt rannsóknatengt doktorsnám. Doktorsnámið er einstaklingsmiðað og a.m.k. þriggja ára fullt nám en stundi doktorsnemi námið að hluta getur námið tekið allt að fimm árum. Í doktorsnámi er höfuðáhersla lögð á rannsóknir sem nemendur vinna undir handleiðslu leiðbeinanda sem skal vera fastráðinn kennari við deildina. 

Inntökuskilyrði

Framhaldsnám

Sá sem hefur lokið meistaraprófi (kandídatsprófi) eða sambærilegu prófi við viðurkenndan háskóla getur sótt um að hefja doktorsnám við Félags- og mannvísindadeild. Einnig getur sá sem hefur stundað doktorsnám við annan háskóla sótt um að hefja doktorsnám við deildina. 

Umsækjandi skal hafa lokið meistaraprófi (kandídatsprófi) eða sambærilegu prófi með fyrstu einkunn.

Seigla félag doktorsnema

Seigla er félag doktorsnema á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands. Markmið Seiglu er að stuðla að öflugu félagslífi og tengslamyndun doktorsnema sviðsins. Félagið stendur fyrir reglulegum uppákomum innan og utan veggja háskólans. 

Hafðu samband


Nemenda- og kennsluþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
Netfang: nemFVS@hi.is

Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Opið virka daga frá 9 - 15 
Sími: 525 4500 

Nánari upplýsingar um námið veita Sigrún Daníelsdóttir Flóvenz, verkefnisstjóri og Kolbrún Eggertsdóttir, gæðastjóri.
Fyrirspurnir er hægt að senda á netfangið doktorsnamFVS@hi.is.