Skip to main content

Lagabókasafn í Lögbergi

Lagabókasafn í Lögbergi - á vefsíðu Háskóla Íslands


Bókasafn Lagadeildar er á 3. hæð í Lögbergi, húsi Lagadeildar, sími 525-4372.

Bókasafnið er stærsta lagabókasafn landsins en bækurnar eru almennt ekki til útláns.

Afgreiðslutími vormisseri 2024

Mánudagur 8:15-12:00
Þriðjudagur 13:00-16:00
Miðvikudagur 8:15-12:00
Fimmtudagur 13:00-16:00
Föstudagur 8:15-12:00

Vinsamlegast hafið samband við þjónustuborð á 2.hæð í Þjóðarbókhlöðu ef þörf er á aðstoð utan afgreiðslutíma (landsbokasafn@landsbokasafn.is), s. 525-5685/525-5681. Þar má jafnframt skila bókum.

Nemendur Lagadeildar, sem eru í ritgerðavinnu, geta alltaf farið á Landsbókasafn þegar bókasafnið í Lögbergi er lokað og fengið bækur af Lögbergssafninu í gegnum aðalsafnið.

Starfsmaður bókasafnsins er Guðmundur Ingi Guðmundsson (gudmundur.i.gudmundsson@landsbokasafn.is, lagabokasafn@landsbokasafn.is). Starfsfólk í Lögbergi getur beint beiðnum um ljósrit úr ritum sem eru í Þjóðarbókhlöðu til hans.

Rafræn gagnasöfn - Lögfræði
Landsbókasafn-Háskólabókasafn kaupir áskrift að ýmsum gagnagrunnum sem nýtast lögfræðingum en Lagadeild kaupir þar til viðbótar sérstaklega áskrift að eftirtöldum gagnasöfnum:

HeinOnline er gagnasafn á sviði lögfræði, sérstaklega bandarískrar. Lagadeildin er áskrifandi að tveimur gagnagrunnum Law journal library og English reports. Í Law journal library eru  2.000  tímarit á sviði lögfræði. Þar má finna bæði  heildartexta tímaritsgreina og tilvísanir í tímaritsgreinar án heildartexta. Í gegnum English reports er aðgangur að yfir 100.000 enskum dómsmálunum frá árinu 1220  til 1867.

Karnov  er gagnasafn með dönskum réttarheimildum. Í áskrift lagadeildar er, auk lagasafnsins, meðal annars innifalinn aðgangur að reglugerðum, greinargerðum og athugasemdum með lögum, hæstaréttardómum og  efni í Evrópurétti.  Aðgangur að Karnov er í tölvu á bókasafninu.

Lovdata Pro er gagnasafn með yfirgripsmiklum norskum réttarheimildum. Áskrift lagadeildar er að öllu gagnasafninu. Þar er meðal annars að finna norsk lög og reglugerðir, greinargerðir með lögum, hæstaréttardómar og undirréttardóma auk meira en 6500 greina um lögfræði. Þá er þar að finna réttarheimildir á sviði EES og ESB auk fleiri alþjóðlegra réttarheimilda.

University Press Scholarship Online  Áskriftin nær aðeins til lögfræðihluta gagnasafnsins og  er takmarkast við þrjá notendur í einu. Heildartextar yfir 1500 rafbóka á sviði lögfræði er þarna að finna.

Westlaw  er gagnasafn á sviði breskrar löggjafar  ásamt Evrópurétti. Í safninu er Bresk löggjöf frá 1220 auk dóma og löggjöf Evrópusambandsins frá 1954. Þar má finna heildartexta yfir hundrað tímarita auk tilvísana í greinar án heildartexta.  Áskriftin gildir ekki að alþjóðlegum hluta safnsins, Westlaw International.

Gagnasöfnin eru opin öllum nemendum og starfsfólki HÍ frá tölvum í netaðgangi á háskólasvæðinu gegnum heimasíðu Þjóðarbókhlöðunnar.

Safnkostur og útlán 

Í safninu eru um 10 þúsund bækur, nýjustu árgangar rúmlega 30 tímarita í prentaðri útgáfu og ýmis uppsláttarrit. Safnkosturinn er skráður á Leitir sem er samskrá um 200 íslenskra bókasafna. Safngögn eru almennt ekki lánuð út.  Aðgangur er öllum heimill á opnunartíma útibúsins í Lögbergi til að skoða rit. Þar er jafnframt skanni sem hægt er að nota endurgjaldslaust með aðstoð bókavarðar.

Allir nemendur Lagadeildar HÍ eiga kost á því að fá bækur safnsis að láni í allt að 3 daga. Kennarar Lagadeildar HÍ, meistaranemar Lagadeildar HÍ sem eru að vinn að lokaritgerð og grunnnemar Lagadeildar HÍ sem eru að vinna að BA-ritgerð í lögfræði geta fengið bækur að láni í 30 daga.

Útlánseintök  íslenskra bóka eru á 4. hæð í Þjóðarbókhlöðu. Gagnasöfn safnsins veitir aðgang að 19 þúsund rafrænum tímaritum á öllum fræðasviðum. Ennfremur er rafrænn aðgangur að Stjórnartíðindum, Lagasafni og Hæstaréttardómum.

Lestraraðstaða
Um 96 lesborð eru í Lögbergi og annast Orator úthlutun á þeim.

Upplýsingaþjónusta
Aðsetur upplýsingaþjónustu  Landsbókasafns er á 2. hæð í Þjóðarbókhlöðu og er hún opin kl. 09:00 -16:00 virka daga.  Einfaldar fyrirspurnir eru afgreiddar innan sólarhrings og eru án endurgjalds. Ítarlegar heimildaleitir eru gerðar gegn gjaldi. Einnig er hægt að fá kennslu og leiðbeiningar við notkun rafrænna gagnasafna.