Skip to main content
25. apríl 2017

Róbert H. Haraldsson nýr sviðsstjóri kennslusviðs HÍ

""

Róbert H. Haraldsson hefur verið ráðinn nýr sviðsstjóri kennslusviðs Háskóla Íslands frá 15. apríl 2017. 

Róbert lauk BA- prófi í heimspeki og sálarfræði frá Háskóla Íslands árið 1985 og doktorsprófi í heimspeki frá Háskólanum í Pittsburgh árið 1997. 

Róbert hefur kennt við Háskóla Íslands frá árinu 1992 og verið prófessor í heimspeki frá árinu 2007. Á árunum 2015-2016 sinnti Róbert stöðu gestaprófessors við Colgate-háskóla í New York-fylki í Bandaríkjunum (NEH distinguished professor of philosophy). Hann hefur einnig sinnt kennslu á grunn- og framhaldsskólastigi. 

Róbert hefur sinnt margvíslegum trúnaðar- og stjórnunarstörfum innan Háskóla Íslands. Hann var formaður kennslumálanefndar háskólaráðs árin 2008-2014 og hefur einnig setið í fjármálanefnd og vísindanefnd háskólaráðs. Hann tók virkan þátt í mótun heildarstefnu Háskóla Íslands 2006-2011 og 2011-2016 og hefur verið formaður ýmissa tímabundinna nefnda við háskólann sem lúta að kennslu, svo sem nefndar um brotthvarf nemenda (2007), og setið í starfshópi um þróun A-prófsins (2012-2014). Róbert hefur verið formaður námsbrautar í heimspeki, forstöðumaður Heimspekistofnunar, varadeildarforseti Hugvísindadeildar og formaður Félags háskólakennara. 

Róbert hefur einnig starfað sem ráðgjafi með ýmsum fagfélögum, fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi, m.a. var hann formaður ráðgjafarnefndar Fjármálaeftirlitsins um hæfi stjórnarmanna fjármálafyrirtækja, vátryggingafélaga og lífeyrissjóða (2013-2015). Hann var meðritstjóri tímaritsins Skírnis árin 1995-2000 og norræna heimspekitímaritsins SATS árin 2001-2015.

Róbert H. Haraldsson