Skiptinám

Alþjóðaskrifstofa Háskóla Íslands - Háskólatorgi, 3. hæð, sími 525 4311 netfang ask@hi.is

Viltu kynnast nýju landi, nýrri menningu, nýju fólki og auka námsval þitt? Viltu fá góðan ferða- og dvalarstyrk til þess að nema við erlendan háskóla og fá skólagjöld niðurfelld við háskóla í Bandaríkjunum eða Kanada?

Þetta er mögulegt með því að fara í skiptinám. Í Nordplus og Erasmusskiptum er styrkur í boði, ferðastyrkur og dvalarstyrkur (sjá undir Evrópa hérna til hægri). Einnig er góður námsstyrkur fyrir einn stúdent á ári við Háskólann í Minnesota í Bandaríkjunum. Í öðru skiptinámi felst ávinningurinn í niðurfelldum eða mikið lækkuðum skólagjöldum. Gestaskóli aðstoðar við húsnæðisleit.

Samstarfsskólana finnur þú á undirsíðunum til hægri

Bæklingur um skiptinám (.pdf, 907 kb)

Kynningarfundir um skiptinám verða haldnir reglulega í vetur

Viltu vera tengiliður skiptinema (buddy)? Kjörið tækifæri fyrir þá sem hyggja á skiptinám eða þá sem vilja auka tungumálakunnáttu sína. Nánari upplýsingar á heimasíðu Stúdentaráðs. Hlekkur á skráningarform fyrir vorið 2012 mun birtast á þessari síðu.

deila á facebook