Forsíða

Fréttir og viðburðir

Opnunartími deildarskrifstofu yfir hátíðirnar

Skrifstofa hjúkrunarfræðideildar verður lokuð 24. desember til 1. janúar.

 

Nám í hjúkrunarfræði til BS-prófs við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands fyrir fólk með annað háskólapróf

 

Ath! Umsóknarfrestur er til kl. 14.00, mánudaginn 22. desember.

 

Birt með fyrirvara um samþykki háskólaráðs.

Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands samþykkt að bjóða einstaklingum sem lokið hafa BS- eða BA- gráðu í öðrum greinum en hjúkrunarfræði að hefja nám til BS prófs í hjúkrunarfræðideild á vormisseri 2009. Með þessu vill hjúkrunarfræðideild leggja sitt af mörkum til að koma til móts við breyttar aðstæður fjölmargra Íslendinga.

Námið

  • Námið hefst í janúar 2009.
  • Verið er að skoða möguleika á að bjóða upp á sumarnámskeið.
  • Kennsla mun að mestu fara fram samhliða öðru grunnnámi í deildinni, en einhver námskeið verða fjarkennd þar sem notast verður við upptökur og vefkennslu.

Inntökuskilyrði og reglur

  • Inntökuskilyrði eru þau að hafa lokið háskólanámi sem veitt hefur BA- eða BS-gráðu.
  • Sömu reglur og kröfur munu almennt gilda fyrir nemendur í námsleiðinni og eru viðhafðar í hefðbundnu grunnnámi deildarinnar.
  • Hver einstaklingur verður metinn út frá því námi sem hann hefur áður lokið.

Frekari upplýsingar (pdf skjal)

  

Hermann gengur til liðs við hjúkrunarfræðideild 

Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands bættist á dögunum góður liðsauki þegar deildin eignaðist sýndarsjúklinginn „Hermann“. Tilkoma þessa tölvustýrða hermis er gríðarleg bylting í hjúkrunarfræðikennslu hér á landi. Um Hermann má lesa hér.

 

Dagskrá málstofa Rannsóknarstofnunar í hjúkrunarfræði haustið 2008. (Pdf)
Viðburðir Rannsóknarstofnunar í hjúkrunarfræði.

___________________________________________

 

Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands
Eirberg, Eiríksgata 34, 101 Reykjavík.
Sími:525-4960, fax:525-4963, netf.: hjukrun@hi.is