Skip to main content

Fundargerð háskólaráðs 25. ágúst 2016

08/2016

HÁSKÓLARÁÐSFUNDUR

Ár 2016, fimmtudaginn 25. ágúst var haldinn fundur í háskólaráði sem hófst kl. 13.

Fundinn sátu Jón Atli Benediktsson, Amalía Björnsdóttir (varamaður fyrir Eirík Rögnvaldsson), Borgar Þór Einarsson (varamaður fyrir Orra Hauksson), Erna Hauksdóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir (varamaður fyrir Guðrúnu Geirsdóttur), Ragna Sigurðardóttir, Stefán Hrafn Jónsson og Þengill Björnsson. Fundinn sátu einnig Magnús Diðrik Baldursson sem ritaði fundargerð og Þórður Kristinsson.

1.    Nýtt háskólaráð skv. lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008.
Rektor setti fundinn og bauð fulltrúa í háskólaráði velkomna til starfa í háskólaráði Háskóla Íslands. Fjallað verður um starfshætti og starfsáætlun háskólaráðs með fullskipuðu ráði á næsta fundi.

2. Tilnefning þriggja fulltrúa í háskólaráð og eins sameiginlegs varamanns fyrir þá, sbr. 4. tölul. 3. mgr. og 5. mgr. 6. gr. laga um opinbera háskóla nr. 85/2008.
Samkvæmt lögum um opinbera háskóla nr. 85/2008 tilnefnir háskólaráð, skipað átta fulltrúum, sameiginlega þrjá fulltrúa til viðbótar, auk sameiginlegs varamanns þeirra, til þess að ráðið teljist fullskipað. Rektor bar upp tillögu um að viðbótarfulltrúarnir þrír verði þau Ásthildur Margrét Otharsdóttir, ráðgjafi og formaður stjórnar Marel hf., Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, og Tómas Þorvaldsson, lögmaður hjá Vík lögmannsstofu. Fyrir fundinum lágu ferilskrár þeirra allra. Málið var rætt.

– Samþykkt einróma.

Þá bar rektor upp tillögu um að sameiginlegur varamaður þeirra þriggja verði Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar. Fyrir fundinum lá ferilskrá hennar. Málið var rætt.

– Samþykkt einróma.

Nýtt háskólaráð fyrir tímabilið 2016-2018 er þá þannig skipað:



Aðalmenn:
•    Jón Atli Benediktsson, prófessor í rafmagns- og tölvuverkfræði og rektor Háskóla Íslands, forseti ráðsins,
•    Ásthildur Margrét Otharsdóttir, ráðgjafi og formaður stjórnar Marel hf., fulltrúi tilnefndur af háskólaráði,
•    Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor við Íslensku- og menningardeild Hugvísindasviðs, fulltrúi háskólasamfélagsins,
•    Erna Hauksdóttir, fyrrv. framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), fulltrúi mennta- og menningarmálaráðherra,
•    Guðrún Geirsdóttir, dósent við Kennaradeild Menntavísindasviðs og deildarstjóri Kennslumiðstöðvar Háskóla Íslands, fulltrúi háskólasamfélagsins,
•    Orri Hauksson, forstjóri Símans, fulltrúi mennta- og menningarmálaráðherra,
•    Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, fulltrúi tilnefndur af háskólaráði,
•    Ragna Sigurðardóttir, læknanemi, fulltrúi stúdenta,
•    Stefán Hrafn Jónsson, prófessor við Félags- og mannvísindadeild á Félagsvísindasviði, fulltrúi háskólasamfélagsins,
•    Tómas Þorvaldsson, sérfræðingur í hugverkarétti, eigandi og lögmaður hjá Vík Lögmannsstofu,
•    Þengill Björnsson, verkfræðinemi, fulltrúi stúdenta.

Varamenn:
•    Amalía Björnsdóttir, prófessor við Kennaradeild Menntavísindasviðs, varamaður fyrir Eirík Rögnvaldsson,
•    Borgar Þór Einarsson, lögmaður, varamaður fyrir Orra Hauksson,
•    Eyrún Fríða Árnadóttir, uppeldis- og menntunarfræðinemi, varamaður fyrir Þengil Björnsson,
•    Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideild  Heilbrigðisvísindasviðs, varamaður fyrir Guðrúnu Geirsdóttur,
•    María Rut Kristinsdóttir, sérfræðingur hjá innanríkisráðuneytinu og markaðsstjóri GOMOBILE, varamaður fyrir Ernu Hauksdóttur,
•    Rúnar Unnþórsson, dósent við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, varamaður fyrir Stefán Hrafn Jónsson,
•    Svanhildur Konráðsdóttir, sviðsstjóri menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar, varamaður fyrir Ásthildi Margréti Otharsdóttur, Rögnu Árnadóttur og Tómas Þorvaldsson,
•    Tryggvi Másson, viðskiptafræðinemi, varamaður fyrir Rögnu Sigurðardóttur.

Fleira var ekki gert.
Fundi slitið kl. 13.30.