Skip to main content

Reglur nr. 554-2010

Reglur um Sálfræðistofnun Háskóla Íslands, nr. 554/2010

PDF-útgáfa

1. gr.  Almennt.

Sálfræðistofnun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsókna- og fræðslustofnun sem starfrækt er af Háskóla Íslands.


Stofnunin heyrir undir Sálfræðideild á Heilbrigðisvísindasviði og er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á fræðasviðum sálfræði.

2. gr.  Hlutverk.

Hlutverk Sálfræðistofnunar er:

  1. að efla rannsóknir í sálfræði sem unnið er að við Háskóla Íslands,
  2. að styðja kennslu og þjálfun í vísindalegum vinnubrögðum og veita nemendum í framhaldsnámi aðstöðu og búnað til rannsóknarstarfa eftir því sem kostur er,
  3. að stuðla að samstarfi við innlenda og erlenda rannsóknaraðila í sálfræði og sterkum tengslum við atvinnu- og þjóðlíf,
  4. að sinna þjónustuverkefnum á sviði sálfræði,
  5. að gefa út og kynna niðurstöður rannsókna í sálfræði,
  6. að veita upplýsingar og ráðgjöf um sálfræðileg málefni,
  7. að gangast fyrir námskeiðum og fyrirlestrum um sálfræði.

3. gr.  Aðstaða.

Háskóli Íslands lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, svo sem húsnæði og búnað eftir því sem kostur er.


Stofnunin veitir starfsliði sínu skv. 8. gr. aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er.

4. gr.  Skipulag.

Stjórn Sálfræðistofnunar er heimilt að koma á fót sjálfstæðum rannsóknastofum í samræmi við 27. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands.


Stjórn Sálfræðistofnunar setur hverri stofu starfsreglur. Í starfsreglum stofu kemur meðal annars fram hverjir standa að stofunni og tengsl stofu og stofnunar eru nánar tilgreind. Stofustjóri er fyrir hverri stofu, valinn í samræmi við starfsreglur stofunnar og ber á henni fjárhagslega ábyrgð.


Stofustjóri er ábyrgur gagnvart stjórn Sálfræðistofnunar í starfi sínu, leggur fram rekstraráætlanir og stýrir rannsóknarverkefnum.


Stofustjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri stofunnar og hefur eftirlit með störfum starfsmanna hennar, fjármálum og rannsóknarverkefnum.


Heimilt er að stofna rannsóknastofur um langtíma þjónustuverkefni.

5. gr.  Stjórn.

Forseti Heilbrigðisvísindasviðs skipar fjögurra manna stjórn Sálfræðistofnunar til þriggja ára. Sálfræðideild tilnefnir þrjá fulltrúa úr hópi fastra kennara við Sálfræðideild og starfsmenn stofnunarinnar einn úr eigin hópi. Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.


Stjórnin kýs sér formann sem skal vera fastur kennari við Sálfræðideild en skiptir að öðru leyti með sér verkum.


Stjórnin ræður forstöðumann sem kemur fram fyrir hönd stofnunarinnar, annast daglegan rekstur og sér um framkvæmd á ákvörðunum stjórnar. Sé ekki ráðinn forstöðumaður við stofnunina er stjórnarformaður forstöðumaður hennar.

6. gr.  Stjórnarfundir.

Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða með tölvupósti, með minnst þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina frá dagskrá fundar.


Skylt er að boða stjórnarfund óski forseti Heilbrigðisvísindasviðs, forseti Sálfræðideildar, stjórnarmaður í stofnuninni eða að lágmarki þrír fastir kennarar í sálfræði eftir því. Einnig getur rektor Háskóla Íslands boðað til stjórnarfundar þar sem hann eða sérstaklega tilnefndur fulltrúi hans nýtur fulls málfrelsis og tillöguréttar en ekki atkvæðisréttar.


Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.


Halda skal gerðabók stjórnar og fundargerðir færðar í hana. Afrit fundargerða skulu send stjórnarmönnum með tölvupósti eða öðrum sannanlegum hætti og þeim gefinn kostur á að gera athugasemdir. Staðfestar fundargerðir skulu sendar forseta Sálfræðideildar.

7. gr.  Verkefni stjórnar.

Stjórnin tekur allar stefnumarkandi ákvarðanir fyrir stofnunina og setur henni starfsreglur.


Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.


Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum stofnunarinnar gagnvart deild og forseta Heilbrigðisvísindasviðs, samþykkir rekstrar- og fjárhagsáætlun og gerir tillögu til deildar um fjárveitingar og skiptingu þeirra og annarra tekna.


Stjórnin gerir tillögu að samþykktum um þjónusturannsóknir sem háskólaráð staðfestir.


Stjórnin efnir til ársfundar með starfsmönnum Sálfræðideildar og Sálfræðistofnunar þar sem ársskýrsla er lögð fram og fjallað um önnur mál svo sem kveðið er á um í reglum fyrir Háskóla Íslands.

8. gr.  Starfsmenn.

Forseti Heilbrigðisvísindasviðs ræður stofnuninni forstöðumann að fenginni tillögu stjórnar og með samþykki Sálfræðideildar. Forseti Heilbrigðisvísindasviðs setur forstöðumanni erindisbréf þar sem nánar er kveðið á um verksvið hans.


Um ráðningu annars starfsfólks fer eftir ákvæðum reglna fyrir Háskóla Íslands. Sé um að ræða ráðningu í starf og ekki er gert ráð fyrir því starfsheiti í reglunum fer stjórn stofnunarinnar eða forstöðumaður í umboði hennar með ráðningarmálið.

9. gr.  Fjármál.

Tekjur Sálfræðistofnunar Háskóla Íslands eru eftirfarandi:

  1. framlag frá Sálfræðideild,
  2. styrkir til einstakra verkefna,
  3. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi,
  4. tekjur af útgáfustarfsemi,
  5. aðrar tekjur, t.d. gjafir og framlög úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.

Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi Háskólans. Stofnunin hefur sjálfstætt fjárhald en Sálfræðideild ber á henni fjárábyrgð. Fjárhagsáætlanir og uppgjör skulu borin undir deildarforseta Sálfræðideildar og forseta Heilbrigðisvísindasviðs til samþykktar.


Sé um að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starfsemi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.


Um stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum fer eftir ákvæðum 73. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands.

10. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að fenginni tillögu Sálfræðideildar og stjórnar Heilbrigðisvísindasviðs, öðlast þegar gildi.

Háskóla Íslands, 15. júní 2010.