Skip to main content

Reglur nr. 545-2010

Reglur um Rannsóknastofnun um lyfjamál við Háskóla Íslands, nr. 545/2010

PDF-útgáfa

1. gr.  Almennt.

Rannsóknastofnun um lyfjamál er hlutlaus og óháð rannsókna- og fræðslustofnun sem starfrækt er af Háskóla Íslands. Meginmarkmið stofnunarinnar er að auka rannsóknir og fræðslu um lyfjamál á Íslandi og alþjóðlega. Rannsóknastofnun um lyfjamál er ætlað að vera víðtækur vettvangur rannsókna á sviði lyfjastefnu, einkum öllu því er lýtur að skynsamlegri lyfjanotkun, lyfjafaraldsfræði og lyfjahagfræði. Markmið stofnunarinnar er jafnframt að miðla vísindalegri þekkingu um lyfjamál og laða fræðimenn til starfa á þessu sviði. Að rannsóknastofnuninni standa fastir kennarar í lyfjafræði og samstarfsaðilar innan háskólans og af vettvangi. Stofnunin heyrir undir Lyfjafræðideild á Heilbrigðisvísindasviði. Forseti Heilbrigðisvísindasviðs og formaður stjórnar gera starfssamninga við aðila utan Háskóla Íslands.

2. gr.  Hlutverk.

Hlutverk Rannsóknastofnunar um lyfjamál er:

  1. að vinna þjónustuverkefni á sviði lyfjamála fyrir atvinnulíf og hið opinbera,
  2. að auka samstarf milli fræðimanna, atvinnulífs og opinberra aðila á sviði lyfjamála og vera meðal annars leiðandi í rannsóknum á sviði skynsamlegrar lyfjanotkunar og lyfjahagfræði, 
  3. að vinna að rannsóknarverkefnum og úttektum meðal annars í samstarfi við virta erlenda vísindamenn, 
  4. að treysta samvinnu milli samstarfsaðila í þágu þverfaglegs náms, efla skilning á þeim hagsmunum sem þverfaglegu námi tengjast og stuðla að auknum fjölda námskeiða á sviði lyfjamála innan og utan hefðbundins háskólanáms, 
  5. að auka möguleika námsmanna og kennara til náms- og kennsluskipta, 
  6. veita nemum í rannsóknanámi aðstöðu og búnað til rannsóknastarfa og veita nemum þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum með því að gefa þeim kost á að vinna rannsóknastörf á vegum setursins eftir því sem unnt er, 
  7. að gangast fyrir símenntunarnámskeiðum, ráðstefnum, umræðufundum og fyrirlestrum um efni sem varða starfssvið setursins og 
  8. að vinna að útgáfu rita um lyfjastefnu og lyfjamál.

3. gr.  Aðstaða.

Lyfjafræðideild lætur stofnuninni í té starfsaðstöðu, svo sem húsnæði og búnað eftir því sem kostur er.


Stofnunin veitir starfsliði sínu skv. 7. gr. aðstöðu og nauðsynlegan búnað til rannsókna eftir því sem unnt er.

4. gr.  Stjórn.

Forseti Heilbrigðisvísindasviðs skipar Rannsóknastofnun um lyfjamál sjö manna stjórn til þriggja ára í senn. Deildarfundur Lyfjafræðideildar tilnefnir einn fulltrúa innan deildar sem jafnframt er formaður stjórnar. Rektor tilnefnir einn fulltrúa í stjórn. Forseti Lyfjafræðideildar tilnefnir fjóra stjórnarmenn frá samstarfsaðilum stofnunarinnar, sem samningar hafa verið gerðir við, sbr. 1. gr. og einn stjórnarmann frá öðrum samstarfsaðilum innan Háskóla Íslands. Í stjórn skulu sitja bæði karlar og konur og skal þess gætt að hlutfall kynjanna sé ekki minna en 40%, sbr. 15. gr. laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.

5. gr.  Stjórnarfundir.

Stjórnarfundir skulu haldnir a.m.k. einu sinni á misseri. Annar þeirra er aðalfundur. Aðild að aðalfundi auk stjórnar eiga allir samningsbundnir starfsaðilar, fjárstyrktaraðilar og kennarar við Háskóla Íslands sem tengjast stofnuninni.


Formaður stjórnar boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti, með þriggja daga fyrirvara. Fundarboð skal greina dagskrá fundar.


Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir eða fleiri stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forseti Lyfjafræðideildar, forseti Heilbrigðisvísindasviðs eða rektor ber fram slíka ósk og hafa þeir þá málfrelsi og tillögurétt á fundinum, en ekki atkvæðisrétt.


Falli atkvæði jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns eða þess sem gegnir formannsstörfum.


Halda skal gerðabók stjórnar og skulu staðfestar fundargerðir færðar í hana. Afrit fundargerða skulu send forseta Lyfjafræðideildar. Forstöðumaður situr stjórnarfundi með málfrelsi og tillögurétt en án atkvæðisréttar.

6. gr.  Verkefni stjórnar.

Stjórnin tekur allar stefnumarkandi ákvarðanir fyrir stofnunina og setur henni starfsreglur. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og varða innri starfsemi stofnunarinnar.


Stjórnin ber ábyrgð á fjármálum stofnunarinnar gagnvart deild og forseta Heilbrigðisvísindasviðs, samþykkir rekstrar- og fjárhagsáætlun og gerir tillögu til deildar um fjárveitingar og skiptingu þeirra ásamt skiptingu annarra tekna. Stjórn getur skipað þriggja manna framkvæmdastjórn samkvæmt nánari vinnureglum. Jafnframt getur stjórn skipað ráðgjafanefnd samkvæmt nánari vinnureglum.

7. gr.  Forstöðumaður og starfsmenn.

Heimilt er að ráða stofnuninni forstöðumann að fenginni tillögu stjórnar. Forseti Heilbrigðisvísindasviðs gerir ráðningarsamning við forstöðumann og setur honum erindisbréf þar sem nánar er kveðið á um verksvið hans. Forstöðumaður stofnunarinnar annast daglegan rekstur hennar, þar á meðal eftirlit með starfsmönnum hennar, fjármálum og rannsóknarverkefnum.


Um ráðningu annars starfsfólks fer eftir ákvæðum reglna fyrir Háskóla Íslands. Sé um að ræða ráðningu í starf og ekki er gert ráð fyrir því starfsheiti í reglunum fer stjórn stofnunarinnar eða forstöðumaður í umboði hennar með ráðningarmálið. Rannsóknastofnun um lyfjamál kemur að kennslu í Lyfjafræðideild, eftir nánara samkomulagi.

8. gr.  Fjármál.

Tekjur stofnunarinnar eru eftirfarandi:

  1. framlag frá Lyfjafræðideild,
  2. framlög frá öðrum deildum háskólans ef því er að skipta, 
  3. framlag frá samstarfsaðilum, 
  4. styrkir til einstakra verkefna, 
  5. greiðslur fyrir þjónustustarfsemi, 
  6. tekjur af útgáfustarfsemi og námskeiðahaldi, 
  7. aðrar tekjur, t.d. Þróunarsjóður Háskóla Íslands, gjafir og framlög úr ríkissjóði eftir því sem kveðið kann að vera á um í fjárlögum.

Reikningshald stofnunarinnar skal vera hluti af reikningshaldi háskólans. Stofnunin hefur sjálfstætt fjárhald en Lyfjafræðideild og forseti Heilbrigðisvísindasviðs bera á henni fjárábyrgð. Fjárhagsáætlun skal kynnt og lögð fram til samþykktar á deildarfundi og samþykkt af forseta Heilbrigðisvísindasviðs. Uppgjör skal kynnt forseta Lyfjafræðideildar og forseta Heilbrigðisvísindasviðs.


Sé um að ræða útselda þjónustu, sem veitt er í samkeppni við einkaaðila, skal sú starfsemi fjárhagslega afmörkuð frá öðrum rekstri stofnunarinnar og þess gætt að sá rekstur sé ekki niðurgreiddur með öðrum tekjum, í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.


Um stjórnunar- og aðstöðugjald af sértekjum fer eftir ákvæðum 73. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands.

9. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð hefur sett á grundvelli heimildar í 3. mgr. 11. gr. laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, að fenginni tillögu Lyfjafræðideildar og stjórnar Heilbrigðisvísindasviðs, öðlast þegar gildi. Jafnframt falla úr gildi reglur nr. 345/2007 um Rannsóknastofnun um lyfjamál við Háskóla Íslands með áorðnum breytingum, sbr. reglur nr. 739/2007.

Háskóla Íslands, 15. júní 2010.