Rannsóknir á genum sem virka í taugakerfinu
Pétur Henry Petersen dósent við Læknadeild HÍ og starfsmaður Lífvísindaseturs HÍ mun fjalla um rannsóknir sínar á genavirkni í taugakerfinu, föstudaginn 11. maí 2012 (kl. 12:30-13:10).
Í erindi sínu mun Pétur spanna nokkur verkefni sem unnið er að í rannsóknarstofu hans. Erindið kallast Ongoing projects: Aquaporin, Cystatin C and Mitf target genes in the CNS, og verður flutt á ensku.
