Frjálsasta þjóð í heimi

Guðmundur Hálfdánarson prófessor sagnfræði
Guðmundur Hálfdánarson prófessor sagnfræði

Guðmundur Hálfdánarson prófessor sagnfræði


Guðmundur Hálfdánarson prófessor í sagnfræði hóf ávarp sitt með orðunum - Félagar í hruninu. Hann velti fyrir sér frasanum Frjálsasta þjóð í heimi í fyrirlestri sínum og   hvort hægt væri að rekja hrunið til sögu landsins og sjálfsmyndar þjóðarinnar. Hann benti á að Íslendingar virtust tengja frelsið og frelsisbaráttuna afar sterkt við þjóðarímyndina.   Hann tók dæmi úr skýrslunni Ímynd Íslands málinu sínu til stuðnings. Hún var gefin út árið 2008.

Kjarni skýrslunnar felst í   lýsingarorðunum: dugnaður, bjartsýni, áræðni, kraftur, hreinleiki, frelsisleit lítillar þjóðar. Þá kom fram að Íslendingar hikuðu ekki, létu ekki stoppa sig, þeir væru frekir og ákveðnir, færu framhjá „hírarkíinu“, væru leiddir áfram af „can do spirit“ og væru sannfærðir um að allt reddist.   

Þá benti Guðmundur á hve víða í ræðu og riti s.l áratug hefði verið vitnað í skáldagáfu og sköpunargleði og vísun í að útrásin væri afrakstur menningar, þjóðarminnis og hefða.

Þannig hefðu orðið til orð eins og athafnaskáld. Hann benti á að hér á öldum áður hefðu Íslendingar hins vegar lengi þótt afar latir, framtaks- og duglausir sem þjóð og íhaldssamir ofan í annað. Máli sínu til stuðnings birti hann brot úr Búnaðarbálki Eggerts Ólafssona og gamla texta erlendra manna þar sem lýsingarnar eru ekki í neinu samræmi við hina glæstu sjálfsmynd sem vinsæl var á fyrstu árum 20 aldar og svo aftur í byrjun 21 aldar.  

Fyrirlestur Guðmundar

Hlusta á umræður 26. apríl 2010