Útgáfa og fræðsla



Á Menntavísindavisindasviði eru gefin út tímaritin Uppeldi og menntunHrafnaþing og Netla - veftímarit um uppeldi og menntun. Auk þess eru gefnir út kynningarbæklingar um grunn- og framhaldsnám við Menntavísindasvið og fréttabréf sviðsins.

Uppeldi og menntun er vettvangur fræðilegrar umfjöllunar um efni tengt uppeldi og skólastarfi, en einnig fer þar fram umræða og skoðanaskipti um álitaefni er varða starfshætti og stefnumótun fyrir mennta- og uppeldisstofnanir. 

Hrafnaþing er tímarit um íslensku og íslenskukennslu og er ritstýrt af íslenskukennurum við Menntavísindasvið. 

Í Netlu birtast ritrýndar fræðigreinar, greinar af almennari toga, erindi, frásagnir af þróunarstarfi, umræðugreinar, hugleiðingar, pistlar, viðtöl, ritfregnir og dómar.


Menntavísindastofnun

Menntavísindastofnun er rannsókna- og fræðastofnun sem starfrækt er við Menntavísindasvið. Lög um Menntavísindastofnun tóku gildi 1. janúar 2010, sjá á slóðinni: http://www.hi.is/is/skolinn/reglur_nr_1023_2009.

Meginhlutverk Menntavísindastofnunar er að efla rannsóknir og rannsóknarumhverfi innan Menntavísindasviðs. Stofnuninni er ætlað að styðja rannsóknarstofur og einstaka rannsakendur með því að veita aðstoð við gerð umsókna í rannsóknasjóði; bæði innlenda og erlenda samkeppnissjóði auk annarra fjármögnunarleiða. Einnig mun hún veita ráðgjöf og aðstoð við birtingu á niðurstöðum rannsókna, aðstoða við skipulag rannsókna og styðja við þróunarverkefni sem unnin eru á sviðinu.


Símenntun - Rannsóknir - Ráðgjöf

Við Menntavísindasvið starfar þjónustustofnunin SRR, sem stendur fyrir Símenntun – Rannsóknir – Ráðgjöf.

SRR þjónar því hlutverki að tengja sérfræðiþekkingu starfsmanna við daglegt starf stéttanna sem sviðið menntar. Þar eru boðin námskeið, fræðslufundir og fyrirlestrar fyrir skóla, stofnanir, félagasamtök og einstaklinga. Þar hafa verið reknar stuttar sérhæfðar námsbrautir, s.s fyrir ökukennara.

deila á facebook

Hafðu samband

1. hæð, Stakkahlíð - Enni
Opið 9-15 alla virka daga
Sími: 525-5950

1. hæð, Stakkahlíð - Múli
Sími: 525-5961