Um Menntavísindasvið
Menntavísindasvið menntar kennara fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga og þroskaþjálfa. Kennaraháskóli Íslands sem nú hefur sameinast Háskóla Íslands myndar kjarnann í hinu nýja Menntavísindasviði.
Í öllu námi við Menntavísindasvið eru sterk tengsl við starfsvettvang þeirra stétta sem sviðið menntar, s.s. skóla og aðrar stofnanir samfélagsins. Námið veitir fjölbreytt atvinnutækifæri og er góður undirbúningur undir frekara nám.
Á Menntavísindasviði eru stundaðar fjölbreyttar rannsóknir á sviði menntunar, uppeldis og þjálfunar í þeim tilgangi að skapa nýja þekkingu, íslensku samfélagi til hagsbóta. Áhersla er lögð á öfluga stoðþjónustu við nám, kennslu og rannsóknir með Menntasmiðju sviðsins sem sameinar bókasafn, kennslugagnasafn og tækniþjónustu.
Við Menntavísindasvið starfar stór hópur vel menntaðra kennara á breiðu sviði fræða, listsköpunar og starfsgreina.
Nám á Menntavísindasviði er ýmist staðbundið nám, fjarnám eða sveigjanlegt nám.
Menntavísindasvið hefur aðsetur í Stakkahlíð, Skipholti og Bolholti í Reykjavík og á Laugarvatni.
-
Nám
Grunnnám A-Ö, Framhaldsnám A-Ö, Kennsluskrá, Umsókn um nám, nánar...
- Þjónusta
-
Rannsóknir
Þjónusta og ráðgjöf, Sjóðir og styrkir, Rannsóknastofnanir, Rannsóknasetur
- Samstarf
-
Útgáfa
Fréttabréf, Kynningarefni, Hönnunarstaðall, Árbók og ritaskrá, nánar...
-
Um HÍ
Rektor, Starfsemi, Laus störf, Stjórnskipulag, Lög og reglur, Tenglar
Hafðu samband
1. hæð, Stakkahlíð - Enni
Opið 9-15 alla virka daga
Sími: 525-5950
1. hæð, Stakkahlíð - Múli
Sími: 525-5961

